Nýting náttúruauðlinda vegna ferðamennsku
Í apríl sl. var haldin ráðstefna í Skotlandi um þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á Norðurslóðum, NEST, og sóttu hana þrír þátttakendur frá Hornafirði, Stella Sigfúsdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Helga Davids ásamt Jónu Sigbjartsdóttur frá Sveitarfélaginu Skaftárhreppi. Þátttökulönd á ráðstefnunni voru Ísland, Skotland, Finnland og Svíþjóð. Sjálfbær ferðamennska er skilgreind sem nýting náttúruauðlinda vegna ferðamennsku þar sem efnahagslegur ávinningur til lengri tíma, stöðug náttúruvernd og framþróun byggðar eru meginmarkmið. Til þess að slík ferðamennska verði árangursrík og skili þeim arði sem vænst er til verður stefnumótun og stjórnun hennar að byggjast á áreiðanlegum gögnum og rannsóknum um auðlindina sem selja á og taka þarf tillit til allra hagsmunaaðila og mun þessari skilgreiningu fylgt í NEST verkefninu.
Stella Sigfúsdóttir er verkefnisstjóri NEST og skipað hefur verið í vinnuhópa innan þróunarsvæðis á Íslandi og hafa tveir þeirra þegar haldið sinn fyrsta fund og gert áætlun um helstu verkefni hvors hóps.
Stella segir að mikill ávinningur hafi orðið af Skotlandsráðstefnunni og sífellt komi betur í ljós hversu mikilvægt er að halda slíkar ráðstefnur og vinnufundi innan fjölþjóða samvinnuverkefna. Það er mikilvægt að geta skapað persónuleg tengsl í samstarfsverkefnum sem þessum og mörg málefni voru til umræðu, skrafs og ráðagerðar meðal NEST fulltrúa landanna fjögurra. Hinar þátttökuþjóðirnar þrjár eru komnar nokkuð lengra á veg í NEST en við hér á Íslandi. Þau njóta mikils áhuga og þátttöku af hálfu sveitarfélaga og annarra aðila svo sem innan ferðaþjónustunnar og hagsmunaaðila á þróunarsvæðunum. Hafa verður í huga að íslenski hluti verkefnisins hefur sáralítið fjármagn til ráðstöfunar miðað við hinar þátttökuþjóðirnar og hefur það að sjálfsögðu veruleg áhrif á framgang verkefnisins, kynninga, vöruþróun innan þess og svigrúm til aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Hin löndin þrjú hafa tök á því að bjóða út eða ráða starfsfólk til þess að vinna að og sjá um ákveðna þætti innan verkefnisins sem við höfum ekki, fyrr en okkur tekst að afla nægjanlegra styrkja.
Með þátttöku í NEST verkefninu gefst okkur einstakt tækifæri til þróunar sjálfbærrar ferðaþjónustu til framtíðar, í nálægð við og innan þjóðgarða og friðlýstra svæða á Suðausturlandi segir Stella. Þá er slík þátttaka mikil kynning á ferðaþjónustu á okkar landsvæði í tengslum við verkefnið, ekki síst þar sem Háskóli Íslands leiðir verkefnið frá Háskólasetrinu á Hornafirði.
Alla ráðstefnudagana var ekið vítt og breytt um Wester Ross svæðið í hálöndum Skotlands, en það svæði er til þróunar innan NEST, rigning og rok var alla dagana sem var mjög miður þar sem náttúrufegurð er mikil á þessu svæði. Fyrirlestrar voru haldnir á ýmsum stöðum á leiðinni og erindi flutt og það vakti athygli ráðstefnugesta hversu mikil gestrisni og rausnarskapur var einkennandi á öllum áfangastöðum. Allsstaðar var hópnum boðið í mat og/eða kaffi og var mikil fjölbreytni í boði t.d. var boðið á sjávarréttabar þar sem boðið var upp á gómsæta sjávarrétti. Meðal annars var boðið upp á Haggis einn af þjóðarréttum Skota, það er einhverskonar lifrapylsa bragðbætt með ýmsu kryddi og wiskíi. Þessi gómsæti þjóðarréttur fór þó misjafnlega vel í maga ráðstefnugesta.
Stella segir að þessi frábæri undirbúningur ráðstefnunnar og móttökur Skotanna sé íslensku fulltrúunum gott veganesti þegar kemur að okkur að halda næstu fjölþjóðlegu ráðstefnu í október á næsta ári. Stýrihópur NEST heldur málþing á Hótel Kirkjubæjarklaustri, þriðjudaginn 21. júní n.k. þar sem m.a. kynntur verður árangur og niðurstöður af fjölþjóðafundinum í Skotlandi. Allir hafsmunaaðilar og aðrir sem hafa áhuga á framtíðarþróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á Suðausturlandi eru hvattir til að mæta á málþingið.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til Hótels Kirkjubæjarklausturs í síma 4874900, eða netfang: klaustur@icehotel.is, fyrir 20. júní n.k.




Skrifa athugasemd