Júní
Akurey tekin í gegn
Akurey tekin í gegn
Karlakórsmenn kunna á því lagið. (ATH það vantar nokkra á myndina).
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

15.06.2005 Júní

Karlakórsmenn taka Akurey í gegn

Karlakórsmenn höfðu mikið að gera í síðustu viku en þá mættu niður í Akurey til að taka hana í gegn fyrir Humarhátíðina sem nú er á næstu grösum. Þar voru mættir þeir hörðustu úr röðum Karlakórsins Jökuls. Gallvarskir spúluðu þeir bátinn, losuðu upp alla lausa málningu og þrifu hana hátt og lágt. Menn voru sammála um að kvótakóngurinn Öddi Þorbjörns hafi sýnt snilldar takta með smúlinn. Í framhaldi af því máluðu þeir bátinn í þeim litum sem hafa prýtt hana undanfarin ár. Karlakórsmennirnir löguðu líka til í kringum bátinn, týndu upp allt rusl, fylltu að Akurey með nýrri perlumöl, eins og menn vita þá var Akureyjan dregin á land þar sem hún hefur haft mikið afdráttarfafl fyrir gesti og gangandi.

Akureyjan er stór þáttur í Humarhátíðinni því þar er alltaf haldið nikkuball sem enginn humarhátíðargestur lætur fram frá sér fara. Akureyjan er nú í umsjón Menningarstöðvar frá haust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica