Strákarnir í meistaraflokki rétta úr kútnum
Sindrapistill (Gísli Örn)
Tveir leikir voru leiknir hér fimmtudaginn síðasta í 3. og 4. flokki karla. 4.flokkurinn tapaði naumlega gegn Ægi 3-2, en segja má að í 3.flokks leiknum hafi boltinn hafi fengið að kynnast markneti sameiginlegu liði Ægis- og Hamarsmanna nokkuð vel því strákarnir pökkuðu þeim leik saman 7-1. Skvísurnar okkar í meistaraflokki fóru svo norður og léku gegn sterku liði Þór/KA/KS sem eru nýliðar í 1.deild kvenna því þær léku í úrvalsdeild á seinustu leiktíð. Leiknum lyktaði með 8 mörkum heimakvenna gegn engu marki Sindrastelpna. 3. flokkur kvenna fór austur á Vopnafjörð á sunnudag og unnu þær leikinn 4-2. Strákarnir í meistaraflokk eru aldeilis að rétta úr kútnum því þeir unnu sinn annan leik í röð í dag gegn sterku liði Reynis frá Sandgerði.
Staðan í hálfleik var jöfn 0-0 og voru þá bæði lið búin að eiga nokkur færi. Í seinni hálfleik kom svo eina mark leiksins og var það Seval Zahirovic sem setti hann í þetta skiptið. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu beggja liða og má segja að þetta hafi verið mikill.





Skrifa athugasemd