Júní
Vetnislundinn
Vetnislundinn
Vetnislundinn á planinu við Vesturbraut á Höfn á hringferð sinni um landið
Mynd 1 af 2
1 2

21.06.2005 Júní

Vetnislundinn á Höfn á hringferð sinni um landið

Í dag var staddur hér á Höfn hópur japanskra áhugamanna sem eru á hringferð um landið á vetnishjóli sem er þríhjól, knúið af efnarafölum sem nýtir vetni sem orkugjafa. Hópurinn lagði af stað frá Reykjavík 11. júní sl. norður fyrir og er hingað kominn 10 dögum síðar. Að sögn ferðalangana þá er næsti viðkomustaður á tjaldstæðinu á nágrenni við Jökulsárlón og síðan Jökulsárlón á morgun og sögðust þeir hlakka mikið til sjá þær perlur sem eru á nágrenni Vatnajökuls og því ætluðu þeir að bíða átekta á tjaldstæðinu við Jökulsárlón því samkvæmt spánni eiga þeir að fá flott ferðaveður á morgun. Þeir áætla að verða komnir til Reykjavíkur n.k. laugardag.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu sem stendur á bak við vetnislundann þá sýnir ferð hans að vetnistæknin sé að ryðja sér til rúmt á flestum sviðum samgangna. Tilraunir eru víða í gangi með vetnisreiðhjól og minni bifhjól en aðilar í löndum á borð við Taívan, Kína og Indland hafa sýnt slíkum hjólum mikinn áhuga og gera megi ráð fyrir að létt bifhjól verði komnar á markað innan fárra ára. Að tilraunum með vetnislundann standa sendiráð Íslands í Japan og fyrirtækin Íslensk NýOrka, ÍsAGA, Icelandair, VistOrka, auk japanskra aðila.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica