Selirnir á Jökulsárlóni ánægðir með athyglina
Fjöldi landsela hefur lífgað upp á umhverfið við Jökulsárlón undanfarið. Selirnir halda sig framarlega í lóninu og eru oft 20-30 í hóp á jökunum. Þetta vekur mikla ánægju hjá þeim sem sigla um lónið og selirnir eru orðnir vanir umferðinni og eru ánægðir með athyglina. Utan við Jökulsárósinn sveima hnísur og hrefnur og koma uppundir fjöru. Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón er mjög ánægður með þennan aukabónus á allt það stórfenglega sem Jökulsárlón hefur uppá að bjóða. Haförn sveimaði yfir lóninu um daginn og er það í fyrsta sinn sem Einar Björn sé haförn á þessu svæði. Kríuvarpið er svipað og hefur verið árin á undan og hefur það alltaf mikið aðdráttarafl á ferðamennina og því grimmari og aðgangsharðari sem krían er því meira gaman.
Einar Björn segir að aðsókn í siglingar um lónið hafi verið góð það sem af er sumri og finnst honum að. hún muni vera heldur meiri en síðastliðið sumar en ekki eru komnar heildartölur á það. Hlutfall milli innlendra og erlendra ferðamanna er sama þ.e. erlendir í stórum meirihluta.
Ennþá vantar starfsmenn við lónið t.d. til að sigla Zodiak bátunum og er þeim sem hafa áhuga bent á að hafa samband við Einar Björn í síma 899-5920.





Skrifa athugasemd