Júlí
Vináttuhlaupið
Vináttuhlaupið
Að athöfnin lokinni við Höfða lögðu hlauparar af stað með tákn hlaupsins, logandi kyndil, upp í hringferð sína um landið sem verður alls 1534 km og varir í 15 daga. (Mynd WHRI)

04.07.2005 Júlí

Hlaupararnir koma til Hafnar annað kvöld

Alþjóðlega Vináttuhlaupið ,,World Harmony Run" er nú í fullum gangi víða um heim og kom það til Íslands s.l. laugardag. Vináttuhlaupið sem er 40.000 km. kyndlahlaup hófst í New York 16. apríl síðastliðinn og verður kyndillinn borinn á milli 70 landa í öllum heimsálfum til að efla vináttu, skilning og umburðalyndi. Íslandshluti Vináttuhlaupsins hófst laugardaginn 2. júlí, kl.10 við Höfða. Það var forseti borgarstjórnar, Alfreð Þorsteinsson, sem tendraði kyndilinn. Þaðan var svo hlaupið með logann og verður hlaupið hringinn í kringum landið, alls 1534 km í 15 daga. Öllum er velkomið að slást í hópinn með hlaupurunum sem koma til Hafnar um kvöldmatarleytið á þriðjudag og hlaupa þaðan aftur kl. 9:00 á miðvikudagsmorgun.

Hópur hlaupara frá Sri Chinmoy maraþonliðinu mun fylgja hlaupinu alla leið, en þar á meðal eru hlauparar frá Hollandi, Skotlandi, Tékklandi, Austurríki og Kolumbíu, auk Íslendinga.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica