Hve gamall er Hornafjörður?
Páll Imsland jarðfræðingur heldur erindi á vegum jöklasýningarinnar: Hve gamall er Hornafjörður? Erindið verður haldið í ráðstefnusal Nýheima miðvikudaginn 6. júlí og hefst klukkan 20:30 Hornafjörður er yngri en hingað til hefur yfirleitt verið talið. Í erindinu er fjallað um ísaldarlok á Íslandi með sérstakri áherslu á Suðausturland, þar sem aðstæður voru öðruvísi en annars staðar á landinu. Dregin verður upp mynd af þessum öðruvísi aðstæðum og afleiðingum þeirra á svæðinu sem meðal annars setja aldri Fjaranna og strandlónanna, sem mynda Hornafjörð og önnur sambærileg fyrirbæri á Suðausturlandi, aldurstakmörk.
Að erindinu loknu gefst áheyrendum kostur á að spyrja fyrirlesara frekar út í þessi mál og aðra náttúru Suðausturlands.





Skrifa athugasemd