Flugeldasýningin hefst á miðnætti
Flugeldasýningin á Jökulsárlóni mun hefjast á miðnætti laugardagskvöldið 13. ágúst í stað þess að hefjast fyrr um kvöldið eins og auglýst var. Að sögn Einars Björns Einarssonar staðarhaldara þá er því miður ekki komið eins mikið myrkur og menn höfðu vonað fyrr um kvöldið þrátt fyrir að búið sé að seinka sýningunni um tvær vikur. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir sýninguna sem mun verða hin glæsilegasta. Eins og áður þá mun félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar taka á móti áhorfendum þegar þeir koma á svæðið. Aðgangseyrir sem rennur beint til Björgunarfélags Hornafjarðar er kr. 500 krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir börn. Búist er við miklum fjölda manns og vilja björgunarsveitarmenn hvetja fólk til að mæta tímanlega svo komast megi hjá öngþveiti.
Veðurspáin fyrir laugardagskvöldið reiknar með smá rigningu og því er vissara að taka með sér regngalla eða regnhlíf.





Skrifa athugasemd