Rokk í 50 ár á Hótel Höfn
Þrátt fyrir að enn sé nokkuð eftir af sumarumferðinni þá er byrjað á undirbúningi fyrir vetrarstarfsemina á Hótel Höfn segir Óðinn Eymundsson einn eigenda Hótels Hafnar. Fyrst ber þar að nefna Norðurljósaverkefnið, sem er tenging norðurljósa við ferðaþjónustuna og segir Óðinn það spennandi verkefni og eina af björtustu vonum ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann. Eins og undanfarin ár þá tekur hótelið þátt ásamt Skemmtifélaginu í skemmtidagskrá sem sett er upp hér á Höfn með það að markmiði að skemmta heimamönnum og fá hingað gesti í helgargistingu. Að þessu sinni mun verða tekið fyrir Rokk í 50 ár sem er rjóminn af rokkinu s.l. 50 ár og nýtur Skemmtifélagið aðstoðar rokkdrottningarinnar Andreu Jónsdóttur.
Að setja upp skemmtidagskrá hefur gefist mjög vel og er liður í aukningu gistinátta á hótelinu og hjá öðrum gistihúsum hér í Sveitarfélaginu yfir vetrartímann.





Skrifa athugasemd