Besta sumarið í sjö ár í Skaftafelli
Þetta er besta sumarið í sjö ár, sagði Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður þegar hann var spurður hvernig sumarið hefði verið í Skaftafelli. Það hefur verið rólegt hvað stórframkvæmdir varðar og því betur hægt að hlú að því sem lagfæra þurfti og það hefur gengið mjög vel og við höfum verið með alveg prýðis starfsfólk. Um 150 sjálfboðaliðar hafa komið og starfað tímabundið í Skaftafelli í sumar. Unnið hefur verið við viðhald göngustíga en þeir eru bæði margir og langir, einnig hefur verið unnið við gömlu réttina í Skaftafelli og vonast er til að uppbyggingu hennar ljúki næsta sumar. Ragnar segir að 50% af allri svona sjálfboðavinnu á öllu landinu sé unnin í Þjóðgarðinum í Skaftafelli og ástæðan sé m.a. sú að þar séu fjölbreyttustu verkefnin og aðstæður bestar. Sumarstarfsemin hjá okkur hér í Skaftafelli er þáttur í alþjóðlegri starfsemi þar sem þetta fólk sem hingað kemur til sjálfboðastarfa er frá fjölda landa um allan heim og er því mjög góð landkynning. Margt af þessu fólki hefur síðan heimsótt Ísland og komið í Skaftafell og farið um þá staði þar sem þeir unnu í sinni sjálfboðavinnu.
Mikil og jöfn umferð hefur verið í Skaftafelli í sumar og mikið að gera á tjaldsvæðinu. Augljóst er að fyrir næsta sumar þarf að gera miklar breytingar á tjaldsvæðinu og samræma það nýjum kröfum þar sem meirihluti gesta er á húsbílum, og á bílum með fellihýsi eða tjaldvagn og allt þarf þetta mikið pláss og öðruvísi aðstöðu en fyrir tjöldin.
Í sumar hafa stór auglýsingaskilti með myndum úr Skaftafells-þjóðgarði verið sett upp á þrem stöðum, á plani við gatnamót Lóns-og Hafnarvegar, á Sindrahúsið við Hafnarbraut á Höfn og á Kirkjubæjarklaustri. Ragnar segir ekki nokkurn vafa á að þessi fallegu skilti ásamt nýútkomnum kynningarbæklingum hafi geysilega mikið auglýsingagildi fyrir svæðið.





Skrifa athugasemd