September

Jóna-Edvalds-og-Askell_IMG_

Jóna Eðvalds landaði 250 tonnum af síld - 30.09.2005 September

Jóna Eðvalds, skip Skinneyjar Þinganess, landaði á Hornafirði í gær 250 tonnum af síld sem fékkst í einu kasti á ,,Gauraslóðinni’’ 12 mílum suðaustan við Papey. Fyrstu síldina á þessu hausti 40 tonn, fékk Jóna Eðvalds 20.sept. Sverrir Aðalsteinsson sagði að þetta væri góð síld sem færi í frystingu. Ásgrímur Halldórsson SF kemur til veiða fyrir Skinney Þinganes núna um helgina og fer fljótlega á síldveiðar einnig er á næstunni von á síldveiðiskipinu Áskeli sem veiðir fyrir Skinney Þinganes. Sverrir sagði að enn vantaði fólk til vinnu og beiðni lægi inni hjá útlendingastofnun um leyfi fyrir sjö manns. Við eigum von á Svíum og erum að sækja um atvinnuleyfi fyrir fólk frá Filippseyjum, Braselíu, Póllandi og Bosníu-Hersegóníu. Margir erlendir starfsmenn eru í vinnu hjá okkur og þetta eru góðir og duglegir starfsmenn. Lesa meira
 
Hópurinn

Á leið til Ungverjalands - 29.09.2005 September

Mánudaginn 10. október næstkomandi fara 10 nemendur úr FAS í hálfsmánaðar ferðalag til Ungverjalands. Þetta eru krakkar sem hafa verið þátttakendur í svokölluðu Water and Fire verkefni sem hófst eftir áramótin. Með í för verða einnig tveir kennarar, Halldór Tjörvi og Hjördís Skírnisdóttir. Upphaf þessa má rekja til þess að FAS var boðin þátttaka á ráðstefnu í Brussel um miðjan janúar síðast liðinn. Þar var Evrópusambandið að kynna nýja áætlun í menntamálum sem snýst um það að fá skóla víðs vegar í Evrópu til að vinna saman og nota netið sem samstarfsvettvang. Fljótlega komust á kynni við skóla í vestanverðu Ungverjalandi í bæ sem heitir Zalaegerszeg. Í hvorum skóla eru 10 nemendur sem koma að verkefninu og var afraksturinn settur á vefsíðu sem ber nafnið http://waterfire.fas.is/ og er áherslan lögð á að kynna land og þjóð. Lesa meira
 
Guðbrandur spilar

Startmót Bridgefélags Hornafjarðar - 27.09.2005 September

Sunnudaginn 25. sept. var fyrsta mót vetrarins hjá Bridgefélagi Hornafjarðar. Nú er ákveðið að byrja á tveggja kvölda startmóti þar sem betri árangur gildir til sigurs. 5 pör mættu til keppni og þó að auglýst hefði verið að spilamennska byrjaði stundvíslega kl. hálf átta, voru menn að koma þó nokkuð eftir þann tíma en ætla að gera betur næst og mæta þá stundvíslega kl. 19:30. Það er alltaf betra að mæta tímanlega, því að stundum þarf að hringja út auka mannskap. Úrslit þetta fyrra kvöld startmótsins var sem hér segir: 1. sæti Sverrir Guðmundsson - Birgir Björnsson 1194 stig (59,7%), 2. sæti Árni Stefánsson - Sigfinnur Gunnarsson 1092 stig (54,6%) og í 3. sæti Gunnar Páll Halldórsson - Steinarr Guðmundsson 1076 stig (53,8%) Lesa meira
 
Hornabær

Bjartsýnn á góða starfsemi í Hornabæ - 27.09.2005 September

Fréttamenn vefsins hafa mikið verið spurðir frétta af kaupum Sælgætisgerðarinnar Freyju á Hornabæjarhúsinu og hvenær starfsemi þar hefjist. Til að fá svör við þeirri spurningu var haft samband við Jón Guðmundsson sem ásamt bróður hans Ævari eiga Sælgætisgerðina Freyju. Jón tók fyrirspurn okkar ljúfmannlega og sagði að ekki væri tímabært að gefa miklar yfirlýsingar ennþá og staðan væri sú að ekki væri búið að fastsetja hver starfsemin í Hornabæ yrði en sælgæti yrði það. Kaupin á Hornabæ gerðust að segja má í fljótheitum og vegna annríkis hjá okkur höfum við lítið getað spjallað um þessi mál og hvernig þau verða. Við byrjum á því að kíkja á húsnæðið og skoða hvað við höfum verið að kaupa og það þarf auðvitað að byrja á að gera ýmislegt fyrir húsnæðið síðan fara málin að skírast sagði Jón. Lesa meira
 
Spilatema

Hver er ávinningur af foreldrasamvinnu í skólum? - 26.09.2005 September

Opinn fræðslufundur á vegum Heimilis og skóla verður haldinn í Nýheimum miðvikudaginn 28. september kl. 20:30. Fyrirlesari er Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla. Þar ræðir hún m.a. um mikilvægi foreldrasamvinnu í skólum. Fyrr um daginn fundar hún með foreldraráðum skólanna og einnig fundar hún með bekkjartenglum um hlutverk þeirra. Heimili og skóli eru landssamtök foreldra og veita þau ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka. Þjónusta Heimila og skóla felst t.d. í því að veita foreldrum/félagsmönnum stuðning og liðveislu til að þeir geti axlað uppeldishlutverk sitt. Einnig að efla starf foreldrafélaga svo að þau verði sem virkust og finni þar vettvang til samstarfs við skólann. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 9. ágúst 2004 kl. 11:30

Meira framboð á leiguíbúðum á Höfn - 26.09.2005 September

Fyrirtækið Gljúfurá ehf í Reykjavík hefur keypt sex íbúðir á Höfn og í næstu viku, að sögn Snorra Snorrasonar hjá Fasteignasölunni Hrauni, mun fyrirtækið bæta við þrem íbúðum í viðbót. Gljúfurá ehf. verður með þessar íbúðir til leigu og eru þegar komnir leigjendur í a.m.k. sumar þeirra. Meira framboð á leiguíbúðum auðveldar mjög fyrir þeim sem koma til Hornafjarðar að vinna og þurfa á leiguhúsnæði að halda. Snorri segir að fasteignamarkaðurinn sé búinn að vera líflegur undanfarið og mikið spurt um fasteignir mest sé það fólk á höfuðborgarsvæðinu sem hringi og eru þá að spá í að selja sín dýru hús og kaupa hús úti á landi á miklu lægra verði. |nl| Lesa meira
 
Fá hlaupaæfingu 4.flokks kvenna fyrir Lónshlaupið

Lokahóf knattspyrnudeildar Sindra - 22.09.2005 September

Laugardaginn 24. september verður lokahóf knd. Sindra haldið á Hótel Höfn. Þar ætla leikmenn og aðstandendur meistaraflokka karla og kvenna að fagna saman uppskeru sumarsins á knattspyrnuvellinum. Meistaraflokkur karla fagnar sem kunnugt er þeim góða árangri að komast upp í 2. deild og er eins og gefur að skilja mikil gleði í herbúðum Sindramanna með þann árangur. Stelpurnar geta að sama skapi verið mjög ánægðar með sinn árangur í sumar. Lið þeirra er mjög ungt að árum og þær eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér á vellinum. Ef þær halda hópinn verður um mjög öflugt lið að ræða innan nokkurra ára. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Að loknu borðhaldi verða veittar viðurkenningar fyrir árangur á vellinum í sumar. Að því loknu verður síðan dansleikur fram á rauða nótt þar sem Biggband Bjarts Loga leikur fyrir dansi. Lesa meira
 
Hali í Suðusveit

Dvöl á Hala í Suðursveit - 22.09.2005 September

Á Hala í Suðusveit er stórt einbýlishús sem fyrirhugað er að leigja í haust eða vetur til hópa, fjölskyldna eða einstaklinga sem vilja koma í heimsókn í Suðursveit og kynnast umhverfi, náttúru og sögu Suðursveitar. Það eru hjónin Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason á Hala sem hafa staðið fyrir stofnun Þórbergsseturs og uppbyggingu þess, sem bjóða nú einnig fólki til skemmri eða lengri dvalar á Hala á haustin og veturna og ætla að leigja húsið út á vægu verði. Þórbergssetur er í byggingu, verkefnið í miðjum klíðum en í vetur verður vonandi hægt að halda áfram uppbyggingu og hugmyndavinnu varðandi sýningu sem á að tengjast Þórbergi, og hans kæru sveit, Suðursveit. Lesa meira
 
Björn, Gunnlaugur og Siggi við smíðar í Haukafelli

Þjónustuhúsið í Haukafelli formlega tekið í notkun - 22.09.2005 September

Undanfarið ár hefur Skógræktarfélag Austur–Skaftafellssýslu komið upp þjónustuhúsi með vatnssalernum í landi félagsins í Haukafelli. Næst komandi laugardag, verður þjónustuhúsið formlega tekið í notkun. Af því tilefni verður boðið upp á kaffi og meðlæti í Haukafelli, kl 13:00. Undanfarin tvö ár hefur félagið fengið styrk úr Styrkvegasjóði Vegagerðarinnar, til að byggja upp veginn inn að Haukafelli. Næsti áfangi er að brúa Hálsdalsánna sem liggur austan við Haukafell. Að lokinni kaffistund verða aðstæður til brúargerðar skoðaðar. Lesa meira
 
Höfn

Ertu örugg (ur) um barnið þitt ? - 20.09.2005 September

Á miðvikudaginn 21. september kemur Magnús Stefánsson fulltrúi frá forvanafélaginu “Hættu áður en þú byrjar” en að því standa Forvarna og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík , Félagsþjónustan í Reykjavík og Marita á Íslandi sem er forvarnasvið Samhjálpar. Magnús heldur fræðslufund með nemendum í 9. bekk í Heppuskóla á skólatíma og sýnir m.a. íslenska Maritamynd um raunveruleikann í heimi fíkniefnaneytenda hér á landi. Um kvöldið er boðaður fundur með foreldrum nemenda í 8. og 9. bekk Heppuskóla. Á fundinn kemur Magnús, Jón Garðar Bjarnason aðst.varðstjóri lögreglunnar á Hornafirði og fulltrúi frá félagsþjónustunni. Er ekki að efa að þessi fundur verður fróðlegur og vekur örugglega upp margar spurningar um hinn harða heim þeirra sem lenda í klóm fíkniefna. Foreldrar og aðrir sem vilja láta sig þessi mál varða eru hvattir til að fjölmenna á fundinn sem verður haldinn í bíósal Sindrabæjar. Lesa meira
 
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun

Markaðstorg Hornafjarðar hættir í Hornabæ - 20.09.2005 September

Vegna sölu á Hornabæ mun síðasti markaðurinn þar verða haldinn laugardaginn 24. september og vonumst við til þess að hann verði líflegur og skemmtilegur. Vegna rýmingar húsnæðisins er þeim sem þar eiga muni bent á að taka þá við lok markaðarins næsta laugardag. Þeir sem eiga muni og ætla ekki að vera með bás geta sótt þá á meðan markaðurinn er opinn. Þó svo að starfsemin hætti í Hornabæ heldur markaðstorgið engu að síður áfram að lifa og vinna að markmiði sínu sem er að veita frumkvöðlum, handverksfólki og bændum aðstöðu til að selja og kynna framleiðslu sína og stuðla að endurnýtingu hluta og muna. Markaðstorg Hornafjarðar er ekki rekið með hagnaðarsjónamið í huga heldur til að stuðla að frumkvöðlastarfi og atvinnuuppbyggingu í Hornafirði. Lesa meira
 
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands

1500 fuglar merktir af starfsmönnum Fuglaathugunarstöðvarinnar - 16.09.2005 September

Í morgun var 1000. skógarþrösturinn og 500. þúfutittlingurinn merktur af starfsmönnum Fuglaathugunarstöðavar Suðausturlands frá því merkingar hófust í vor þann 20. mars. Nú er búið að merkja rúmlega 2300 fugla á vegum starfsmanna stöðvarinnar auk skógarþrasta og þúfutittlinga eru það helst 609 kríur, 58 steindeplar og 51 maríuerla. Alls hafa verið merktar 26 tegundir, í morgun náðist t.d. fyrsti smyrillinn. Töluvert hefur komið af merktum fuglum í netin og hafa þeir allir verið merktir í Einarslundi utan einn þúfutittlingur sem merktur var í Belgíu. Lesa meira
 
Úr myndasafni

Þrykkjan búinn að setja í starfsgírinn - 15.09.2005 September

Mánudaginn 5. september hófst starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar á nýjan leik eftir sumarhvíld. Starfsemi Þrykkjunnar er í gamla góða Sindrabæ sem hefur að nokkru gengið í endurnýjun lífdaga með nýjum gólfefnum í sal og forstofu og nýtt teppi er komið á stiga upp í bíósal sem hefur líka verið mikið endurbættur. Þar er hægt að horfa á bíó og á ýmislegt efni í gegnum skjávarpa sem nýtist Þrykkjunni og skólunum ásamt því að þar er hægt að vera með smærri fundi. Tónskólinn er með hluta af starfsemi sinni í salnum. Salurinn tekur um 60 manns í sæti. Þessar endurbætur lofa því góðu fyrir starfsemi Þrykkjunnar. Á kosningavöku sl. föstudaginn var kosið í nýtt Þrykkjuráð og voru kosnir þrír fulltrúar úr hverjum bekk þ.e.a.s. 8.-9. og 10. Ráðið hefur kosið sér formann og er það Sandra Rán Ásgrímsdóttir. Einu sinni í viku eru haldnir fundir í Þrykkjuráði og þar mæta starfsmenn líka. Þar eru viðburðaplön lögð og vinna skipulögð. Lesa meira
 
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal

Starfshópur skipaður vegna framkvæmda í tengslum við landsmót - 15.09.2005 September

Búið er að skipa starfshóp vegna framkvæmda í Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við fyrirhugað unglingalandsmót sem haldið verður á Hornafirði 2007. Gert er ráð fyrir að þessi starfshópur greini þörf og geri tillögu um uppbyggingu mannvirkja í tengslum við landsmóts sem síðar verða tekin fyrir í bæjarráði og bæjarstjórn í tengslum við fjárhagsáætlun. Í hópnum verður m.a. rætt um möguleika á uppbyggingu tjaldstæða, sundlaugar, frjálsíþróttaaðstöðu, fótboltavalla o.fl. Eftirtaldir skipa hópinn: Formaður hópsins Albert Eymundsson bæjarstjóri, Helgi Már Pálsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundaráði, Þórgunnur Torfadóttir fulltrúi í æskulýðs og tómstundaráði og Ragnhildur Einarsdóttir formaður USÚ. Lesa meira
 
undirritun_samnings

Undirrituðu samstarfssamning - 14.09.2005 September

Félagsmiðstöðin Þrykkjan og Heppuskóli undirrituðu samstarfssamning í síðustu viku og voru það þeir Guðmundur Ingi skólastjóri Heppuskóla og Haukur H Þorvaldsson starfsmaður æskulýðs- og tómstundarráðs sem undirrituðu samningin. Samstarfssamningurinn felur m.a. í sér að halda sameiginlega skemmtun, að Félagsmiðstöðin geti notað auglýsingar töflur skólans og einnig að félagsmiðstöðin fái að ávarpa nemendur í anddyri skólans. Lesa meira
 
Gísli Már Vilhjálmsson

Þurfum að fá punkta og tillögur frá sem flestum - 13.09.2005 September

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Valgerður Sverrisdóttir skipaði á dögunum verkefnastjórn til að annast gerð vaxtasamnings fyrir Austurland sem hefur það hlutverk að móta stefnu í byggðarmálum. Fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sitja í verkefnastjórninni þau Elín Magnúsdóttir, Gísli Már Vilhjálmsson og Albert Eymundsson. Gísli Már sagði í viðtali við vefinn að vinna við þetta verkefni væri að hefjast og verið væri að senda út fundarboð í sambandi við ferðaklasann þar sem byrjað verður á að skoða hvaða leið verður farin. Þetta verkefni nær til allra sem í sveitarfélaginu búa og við þurfum að fá punkta og tillögur frá sem flestum. Ég lít á vaxtasamninginn sem viðurkenningu á því starfi sem farið hefur fram á þessu klasadæmi sem unnið hefur verið að hér í Nýheimum og er mikill áhugi á hjá fólki. Lesa meira
 
Nýtt nemendaráð í FAS 2005

Nýtt nemendaráð kosið í FAS - 12.09.2005 September

Föstudaginn 9. sept. fóru fram kosningar í nemendaráð Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Ríflega 100 nemendur voru á kjörskrá og var kjörsókn 71%. Tveir atkvæðaseðlar voru ógildir. Alls voru 10 nemendur í framboði en í nemendaráði sitja 5 fulltrúar. Þeir sem hlutu kosningu eru: Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek Jóhannsson, Ingibjörg Lilja Pálmadóttir, Viktor Ragnar Þorvaldsson og Þóra Sigríður Guðmundsdóttir. Við óskum þeim til hamingju. Lesa meira
 
Leiknir Sindri Fáskr

Sindramenn komnir í 2. deild - 09.09.2005 September

Eftir frábæran 1 – 0 sigur á Fáskrúðsfirði gegn Leikni á þriðjudaginn er Sindri kominn í 2. deild. Það var Kristinn Þór Guðlaugsson sem skoraði mark Sindra seint í fyrri hálfleik. Hann prjónaði sig framhjá öllum varnarmönnum Leiknis og markverðinum eftir frábæra hnésendingu frá Steinari. Þetta er sannarlega glæsilegt hjá strákunum enda höfðu ekki margir trú á því að þetta myndi gerast í upphafi tímabils og fyrstu þrír leikir sumarsins voru ekki til þess fallnir að skapa bjartsýni. Strákarnir sýndu hins vegar ótrúlegan vilja og seiglu eftir því sem leið á mótið og í mörgum leikjum voru þeir hreinlega að spila mjög vel. Leiðin í gegnum úrslitakeppnina var sannarlega ekki auðveld þar sem Sindri lenti í tveimur mjög erfiðum liðum, þ.e. Víði og Leikni. Báðar viðureignirnar einkenndust af mikilli baráttu og jöfnum leikjum. Það segir kannski meira en mörg orð að Sindri kemst í gegnum fjórðungs – og undanúrslitin með markatöluna 3 – 1. Á þessu sést hversu jafnar viðureignirnar hafa verið. Óhætt er að minnast á þátt varnarmannanna Gunnars Auðuns Jóhannssonar og Jóns Hauks Haraldssonar sem hafa spilað frábærlega fyrir liðið í úrslitakeppninni en allt liðið hefur auðvitað spilað mjög vel í úrslitakeppninni. Lesa meira
 
Humar í Papós

Hátt í 100 manns vantar til starfa í Sveitarfélaginu - 06.09.2005 September

Mikill skortur er á fólki til starfa á Hornafirði og á það við bæði til sjós og lands við margskonar störf. Atvinnurekendur segja erfitt að fá fólk til starfa og nánast enginn á lausu á staðnum. Þorkell Kolbeins hjá Stéttarfélaginu Vökli segir að innan við tíu manns hafi verið á atvinnuleysisskrá undanfarið og það sé aðallega fólk sem er að skipta um störf sem skrái sig þegar bil myndast á milli starfa. Eftir því sem næst verður komist má áætla að hátt í hundrað manns vanti til starfa hér á svæðinu. Til upplýsinga fyrir þá sem eru í atvinnuleit er Hornafjörður einn fegursti staður landsins þar sem veðursæld er mikil allt árið, heilbrigðisþjónusta mjög góð,leikskólar,skólar til staðar og allt það sem til þarf til að fjölskyldu geti liðið vel. Einnig má benda á að ómældir möguleikar eru fyrir þá sem vilja njóta útivistar allt árið. Lesa meira
 
Veðurblíða í september

Góð fasteignasala á Höfn - 06.09.2005 September

Sala fasteigna á Höfn hefur verið góð undanfarið og meira er leitað að húsum til kaups og eins íbúðum til leigu en verið hefur segir Sigríður Kristinsdóttir á Fasteignasölunni Hrauni. Það er ekki mikið af húsnæði til leigu núna og mér finnst að allt gangi þetta út sem kemur á leigumarkaðinn segir Sigríður. Við höfum verið að fá þó nokkrar fyrirspurnir núna frá fólki sem er að flytja hingað og eins frá ungum Hornfirðingum sem flutt hafa burtu en hafa nú hug á að snúa heim aftur. Þessar fyrirspurnir sem við fáum eru af höfuðborgarsvæðinu og víðsvegar af landsbyggðinni. Sveitarfélagið á 59 íbúðir sem það leigir út og eru þær allar fullsetnar. Af þessum 59 íbúðum eru 46 kaupleiguíbúðir. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Jafntefli í hörkuleik! - 05.09.2005 September

Sindri og Leiknir Fáskrúðsfirði gerðu 0 – 0 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 3. deildarinnar sem fram fór síðastliðinn laugardag á Sindravöllum. Þetta var hörkuleikur þar sem hvorugt lið var tilbúið að gefa þumlung eftir í baráttunni enda mikið í húfi. Sindramenn voru þó nokkuð sterkari í fyrri hálfleik en nokkuð fjaraði undan leik þeirra eftir því sem leið á leikinn og Leiknismönnum óx ásmegin. Það gekk ekki nógu vel hjá Sindra að ógna marki Leiknismanna og tókst þess vegna ekki að skapa nein afgerandi færi. Ekki er þó öll nótt úti enn. Sama staða var fyrir seinni leikinn á móti Víði sem fram fór í Garðinum, þ.e. að strákarnir gerðu jafntefli á heimavelli í fyrri leiknum. Þeir gerðu sér hins vegar lítið fyrir í þeirri viðureign og unnu seinni leikinn á útivelli. Ekkert mælir gegn því að hægt verði að framkvæma sama leikinn þriðjudaginn þegar spilað verður á Fáskrúðsfirði. Lesa meira
 
Veðurblíða í september

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra heimsækir Hornafjörð - 05.09.2005 September

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sótti Hornfirðinga heim miðvikudaginn 31. ágúst. Valgerður nýtti tímann vel og m.a. hitti hún grunnskólabörn, leit við á Jöklasýningu og heimsótti ferðaþjónustubæi. Megin ástæða heimsóknar ráðherrans var þó sú að setja á fót verkefnisstjórn til að annast gerð Vaxtarsamnings fyrir Austurlands. Verkefnisstjórnin hefur það hlutverk að móta stefnu í byggðamálum fyrir Austurland til að treysta samkeppnishæfni og vöxt svæðisins. Vaxtarsamningur eins og nú er verið að ýta úr vör er góð leið til þess að átta sig á stöðu í atvinnulífi í Austurlandsfjórðungi og horfa til framtíðar með eflingu atvinnulífs í huga. Í vinnu verkefnisstjórnarinnar verður sérstaklega tekið mið þörfum jaðarsvæða á Austurlandi, s.s. Hornafjarðarsvæðinu en jafnframt að stefna að auknum hagvexti á svæðinu, fjölgun atvinnutækifæra og treysta byggðakjarna. Lesa meira
 
FAS

Mesti fjöldi nemenda 25 ára eða yngri í sögu skólans - 04.09.2005 September

Föstudaginn 2. september fór fram busavígsla í skólanum. Busum voru kynntar ýmsar reglur hvað varðar hegðun og klæðnað sem voru í gildi þar til vígslu lauk um hádegið á föstudag og þá eru busar orðnir fullgildir nemendur. Alls eru nemendur á fyrsta ári 32 og þar af eru tveir skiptinemar, strákur frá Tælandi og stelpa frá Sviss. Heildarfjöldi nemenda við skólann er um 230. Þar af eru um 30 í kvöldskóla, 90 fjarnemendur og um 110 í dagskóla. Í kvöldskólanum verður leiðsögunám, skipstjórnanám, skrifstofubraut og danska. Fjarnemendur eru af þrennum toga. Í fyrsta lagi nemendur í íslensku og landafræði frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Í öðru lagi nemendur í 30 brl. skipstjórnarnámi og í þriðja lagi fjarnemendur sem eru í þriðja- og fjórðaárs áföngum á stúdentsbrautum. Lesa meira
 
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065

Stórleikur á laugardaginn - 01.09.2005 September

Nú um helgina, laugardaginn 3.sept. fer fram stórleikur ársins á Sindravöllum. Um er að ræða fyrri leik Sindra og Leiknis Fáskrúðsfirði í tveggja leikja rimmu þeirra þar sem barist er um laust sæti í 2. deild á næsta ári. Það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið og ljóst að þau munu berjast þar til yfir lýkur. Bæði liðin lentu í öðru sæti í sínum riðlum 3.deildarinnar þannig að það er mjög góður árangur hjá þeim að ná í undanúrslitin. Sindramenn hafa verið að spila mjög vel að undanförnu og eru til alls líklegir. Skemmst er að minnast glæsts sigurs þeirra í Garðinum þriðjudaginn var. Það er ekki á færi allra að fara í Garðinn og sækja sigur. Líkt og fyrri leik fjórðungsúrslitanna þá hefur hornfirskt fyrirtæki gengið í lið með okkur. Í síðasta leik var það Landsbankinn á Hornafirði sem gerðist svo höfðinglegur að bjóða bæjarbúum frítt á völlinn. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica