Góð fasteignasala á Höfn
Sala fasteigna á Höfn hefur verið góð undanfarið og meira er leitað að húsum til kaups og eins íbúðum til leigu en verið hefur segir Sigríður Kristinsdóttir á Fasteignasölunni Hrauni. Það er ekki mikið af húsnæði til leigu núna og mér finnst að allt gangi þetta út sem kemur á leigumarkaðinn segir Sigríður. Við höfum verið að fá þó nokkrar fyrirspurnir núna frá fólki sem er að flytja hingað og eins frá ungum Hornfirðingum sem flutt hafa burtu en hafa nú hug á að snúa heim aftur. Þessar fyrirspurnir sem við fáum eru af höfuðborgarsvæðinu og víðsvegar af landsbyggðinni. Sveitarfélagið á 59 íbúðir sem það leigir út og eru þær allar fullsetnar. Af þessum 59 íbúðum eru 46 kaupleiguíbúðir.
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri segir að talsvert sé um fyrirspurnir frá höfuðborgarsvæðinu um leiguíbúðir sveitarfélagsins. Hún segir góða stöðu vera í þjónustumálum á vegum sveitarfélagsins t.d. séu leikskólarnir fullmannaðir og sama sé um hjúkrunarheimilið þar séu öll störf mönnuð.





Skrifa athugasemd