September
Undirrituðu samstarfssamning
Félagsmiðstöðin Þrykkjan og Heppuskóli undirrituðu samstarfssamning í síðustu viku og voru það þeir Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla og Haukur Helgi Þorvaldsson starfsmaður æskulýðs- og tómstundarráðs sem undirrituðu samningin. Samstarfssamningurinn felur m.a. í sér að halda sameiginlega skemmtun, að Félagsmiðstöðin geti notað auglýsingar töflur skólans og einnig að félagsmiðstöðin fái að ávarpa nemendur í anddyri skólans.
Gott samstarf hefur ávalt verið á milli Heppuskóla og Þrykkjunar og er samningur þessi liður í því að skýrt sé hvert hlutverk hvers aðila er í félagsmálum unglinga.





Skrifa athugasemd