Lokahóf knattspyrnudeildar Sindra
Laugardaginn 24. september verður lokahóf knd. Sindra haldið á Hótel Höfn. Þar ætla leikmenn og aðstandendur meistaraflokka karla og kvenna að fagna saman uppskeru sumarsins á knattspyrnuvellinum. Meistaraflokkur karla fagnar sem kunnugt er þeim góða árangri að komast upp í 2. deild og er eins og gefur að skilja mikil gleði í herbúðum Sindramanna með þann árangur. Stelpurnar geta að sama skapi verið mjög ánægðar með sinn árangur í sumar. Lið þeirra er mjög ungt að árum og þær eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér á vellinum. Ef þær halda hópinn verður um mjög öflugt lið að ræða innan nokkurra ára. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Að loknu borðhaldi verða veittar viðurkenningar fyrir árangur á vellinum í sumar. Að því loknu verður síðan dansleikur fram á rauða nótt þar sem Biggband Bjarts Loga leikur fyrir dansi.
Það er von knattspyrnudeildarinnar að sem flestir bæjarbúar sjái sér fært að mæta með okkur á Hótelið og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund. Það er mjög mikilvægt fyrir þessi keppnislið okkar Hornfirðinga að finna fyrir stuðningi bæjarbúa. Þetta eru þau lið sem halda uppi merki Sindra þegar kemur að keppni meistaraflokksliða og þau þurfa að finna fyrir stuðningi og velvilja bæjarbúa til þess að halda sínu góða starfi áfram.
Verði er mjög stillt í hóf á lokahófinu. Höfðingjarnir á Hótel Höfn bjóða hátíðarkvöldverðinn á 2.900 kr. og ef fólk vill bæði fara í matinn og á ballið kostar 4.000 kr. En ef fólk vill bara mæta á ball þá kostar miðinn 1.500 kr. Mikilvægt er að fólk staðfesti þátttöku sína í mat á Hótelinu á föstudaginn svo hægt verði að áætla fjöldann. Nánari upplýsingar og miðapantanir er hægt að nálgast á Hótel Höfn í síma 478-1240.





Skrifa athugasemd