September
Hornabær
Hornabær
Hornabær

27.09.2005 September

Bjartsýnn á góða starfsemi í Hornabæ

Fréttamenn vefsins hafa mikið verið spurðir frétta af kaupum Sælgætisgerðarinnar Freyju á Hornabæjarhúsinu og hvenær starfsemi þar hefjist. Til að fá svör við þeirri spurningu var haft samband við Jón Guðmundsson sem ásamt bróður hans Ævari eiga Sælgætisgerðina Freyju. Jón tók fyrirspurn okkar ljúfmannlega og sagði að ekki væri tímabært að gefa miklar yfirlýsingar ennþá og staðan væri sú að ekki væri búið að fastsetja hver starfsemin í Hornabæ yrði en sælgæti yrði það. Kaupin á Hornabæ gerðust að segja má í fljótheitum og vegna annríkis hjá okkur höfum við lítið getað spjallað um þessi mál og hvernig þau verða. Við byrjum á því að kíkja á húsnæðið og skoða hvað við höfum verið að kaupa og það þarf auðvitað að byrja á að gera ýmislegt fyrir húsnæðið síðan fara málin að skírast sagði Jón.

Jón segist vera bjartsýnn á góða starfsemi á Hornafirði ekki síður en í Kerhömrum í Álftafirði þar sem Freyja hefur verið með framleiðslu sl.fjögur ár og hefur komið mjög vel út. Hann á ekki von á að starfsemi í Hornabæ hefjist fyrir jól þar sem tíma tekur að gera húsið klárt og þegar að er gáð sést að það er ótrúlega stutt til jóla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica