September
Hópurinn
Hópurinn
Hópurinn sem er á leið til Ungverjalands

29.09.2005 September

Á leið til Ungverjalands

Mánudaginn 10. október næstkomandi fara 10 nemendur úr FAS í hálfsmánaðar ferðalag til Ungverjalands. Þetta eru krakkar sem hafa verið þátttakendur í svokölluðu Water and Fire verkefni sem hófst eftir áramótin. Með í för verða einnig tveir kennarar, Halldór Tjörvi og Hjördís Skírnisdóttir. Upphaf þessa má rekja til þess að FAS var boðin þátttaka á ráðstefnu í Brussel um miðjan janúar síðast liðinn. Þar var Evrópusambandið að kynna nýja áætlun í menntamálum sem snýst um það að fá skóla víðs vegar í Evrópu til að vinna saman og nota netið sem samstarfsvettvang. Fljótlega komust á kynni við skóla í vestanverðu Ungverjalandi í bæ sem heitir Zalaegerszeg. Í hvorum skóla eru 10 nemendur sem koma að verkefninu og var afraksturinn settur á vefsíðu sem ber nafnið http://waterfire.fas.is/ og er áherslan lögð á að kynna land og þjóð.

Strax í upphafi kom fram mikill áhugi á meðal nemenda beggja landa á því að heimsækja hverja aðra. Á vegum Evrópusambandsins eru til nokkrar áætlanir sem auðvelda samskipti á milli landa. Ein þeirra kallast Comenius og þar er hægt að sækja um styrk til nemendaskipta. Hjördís segir að helstu skilyrði til að fá styrk er að samskipti séu á öðru máli en móðurmáli þátttakenda, dvöl erlendis þarf að vera í a.m.k tvær vikur og til að kynnast landinu sem best þurfa þátttakendur að búa inni á heimilum. Skólarnir sóttu um þennan styrk og fengum við að vita í byrjun ágúst að við hefðum fengið styrkinn. Síðustu vikur hafa því verið notaðar óspart til að skipuleggja væntanlega ferð.
Við erum svo heppin að fá beint flug frá Keflavík til Búdapest og ætlum að fara samdægurs til Keflavíkur því flugið okkar er eftir hádegi. Frá Búdapest förum við svo til Zalaegerszeg þar sem við verðum í hálfan mánuð.

Ytra er búið að skipuleggja dagskrá fyrir okkur allan tímann. Við komum t.d. til með að kynnast skólanum hjá krökkunum í Zalaegerszeg en vikuna sem við komum er 50 ára afmæli skólans fagnað. Við förum m.a. á söfn og í þjóðgarð, á uppskeruhátíð, skoðum hella auk þess sem við skoðum Búdapest. Þjóðhátíðar-dagur Ungverja er 23. október og fáum við að fylgjast með hátíðahöldunum. Okkar krakkar ætla svo að vera með kynningu á Íslandi einn eftirmiðdaginn.
Í febrúar á næsta ári sem svo gert ráð fyrir að Ungverjarnir komi að heimsækja okkur og dvelji hér í tvær vikur.
Þó að við höfum fengið styrk þá er dýrt að fara í svona ferðalag og það er ljóst að kostnaður er meiri en styrkupphæðin. Því höfum við brugðið á það ráð að reyna að afla meiri peninga til að standa straum af kostnaðinum. Nú þegar hafa krakkarnir fengið peningastyrk og næsta sunnudag er ætlunin að baka vöfflur í kaffiteríunni í Nýheimum og selja. Auk þess á að spila bingó og eru margir góðir vinningar í boði. Fyrirtæki á staðnum hafa sýnt velvilja sinn og gefið vinninga.
Það er von okkar að sjá sem flesta í Nýheimum á laugardag segir Hjördís sem er á fullu að undirbúa ferðina.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica