Rúður splundruðust þegar vindkviða skall á jeppabifreið í Hvaldal í Lóni
Við stórslysi lá þegar geysilega mikil vindkviða skall á Suzuki jeppabifreið í Hvaldal í Lóni um kl. 18.30 sl. þriðjudag og við það splundruðust þrjár rúður bílstjóra megin í mél og afturrúðan sekúndubroti síðar, einnig er framrúðan ónýt og spegillinn hægra megin. Eigandi bílsins, Rannveig Ólafsdóttir á Höfn var ásamt Stefaníu Stellu Sigfúsdóttur að koma norðan úr Mývatnssveit og segir allt hafa gengið vel þar til komið var í Hvaldalinn sem er rétt sunnan við Hvalnesskriður. Það tók vel í bílinn í hviðunum og svo skall þessi feikna hvellur á bílinn með ofangreindum afleiðingum sagði Rannveig, glerbrotunum rigndi yfir okkur og það var ekki stætt úti fyrir hvoruga okkar meðan hviðurnar gengu yfir og það var mjög skammt milli þeirra.
Þarna er ekkert GSM samband svo við urðum bara að bíða og u.þ.b. tíu mínútum seinna kemur starfsmaður Vegagerðarinnar á Toyota Land Cruiser. Hann birtist þarna bara eins og engill okkur til hjálpar og keyrði okkur á Heilsugæslustöðina á Höfn þar sem læknir týndi úr okkur glerbrot og hreinsaði sár sem við fengum á andlit og hendur. Rannveig segir að fyrir utan þá líkamlegu áverka á andliti og höndum ásamt andlegu áfalli sé tjón þeirra mikið því komið hafi miklar rispur í gleraugu þeirra beggja og blóðblettir í föt einnig fuku persónulegir munir og innkaupavarningur út úr bílnum og vonlaust var að ætla sér að elta það uppi. Auk rúðubrotsins er bíllinn mikið skemmdur eftir grjót og möl sem buldi á bílnum.





Skrifa athugasemd