Október
Kólesterólmæling
Kólesterólmæling
Ari Þorsteinsson mætti stoltur á Heilsugæslustöðina þar sem Ester Þorvaldsdóttir mældi hjá honum kólesterólmagnið (úr myndasafni).
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

12.10.2005 Október

Tók forskot á kólesterólmælinguna

Í dag miðvikudaginn 12. október stendur Hornfirðingum til boða að koma á heilsugæslustöðina frá kl. 11 til 15 og þiggja ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu í boði Félags hjartasjúklinga á Hornafirði, Hjartaheillar, lyfjafyrirtækisins Astra Zeneca og heilsugæslustöðvar Hornafjarðar. Í gær tók Ari Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands forskot á blóðfitu- og blóðþrýstingsmælinguna þegar hann mætti upp á heilsugæslustöð þar sem Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur tók á móti honum og veitt honum ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu. Ari segir þetta mjög lítið mál og ekki spurning að Hornfirðingar ættu að nýta sér þetta frábæra tækifæri.

Tilgangurinn með þessu framtaki er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að þekkja sitt kólesteról. Lækkun á kólesteróli er einn mikilvægasti hlekkurinn í forvörnum á því sviði að koma í veg fyrir hjarta og æðasjúkdóma. Með hollu mataræði og hreyfingu má ná ákveðnum árangri en stundum þarf að grípa til lyfjameðferðar til að lækka blóðfitu.
Heitt kaffi verður á könnunni, boðið verður upp á spjall um meðferðarheldni og almenna fræðslu frá heilbrigðisstarfsfólki. Í lok dagsins fær heilsugæslustöðin að gjöf blóðfitumæli frá Hjartaheill.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica