Október
Á leið í skólaakstur
Á leið í skólaakstur
Skólaakstur (úr myndasafni)

14.10.2005 Október

Brjálað veður í Öræfum

Hér er brjálað veður og búið að loka veginum um sveitina sagði Jónína starfsmaður í Freysnesi í Öræfum núna um kl 13.30. Skólabörnin eru veðurteppt á Hofi og verða flutt til síns heima í dag með Drekanum. Bensínstöðinni í Freysnesi er lokuð meðan óveðrið gengur yfir og er þeim sem kynnu að koma þangað bent á að koma heim á hótelið. Tveir mjólkurbílar voru á ferð í Öræfum og er annar í Freysnesi en hinn komst í Hof. Jónína veit ekki til að orðið hafi tjón á bílum eða öðru í Öræfum enda Öræfingar vanir að takast á við svona venjuleg stórviðri á þeirra mælikvarða og ganga frá híbýlum sínum samkvæmt því. Vindhraðinn mældist núna 42 m. en veðrið á að lægja þegar líður á daginn og er spáin í dag austan 18-23 m/s og talsverð rigning. Suðaustan 10-15 síðdegis. Hiti 0 til 5 stig, en 5 til 10 undir kvöld.

Mjög hvassar hviður hafa verið undir Eyjafjöllum allt uppí 45m.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica