Október
Namskeid_IMG_0135
Namskeid_IMG_0135
Á glernámskeiði hjá Svönu Kristjánsdóttur

17.10.2005 Október

Brugðu sér til Reykjavíkur á glerlistanámskeið

Tvær Hornfirskar húsmæður brugðu sér til Reykjavíkur á dögunum á glerlistanámskeið hjá Svanhvíti Kristjánsdóttur glerlistakonu (Svönu hans Gutta), Hornfirðingi til margra ára. Þetta eru tveggja daga námskeið þrjá tíma á dag. Byrjað er á að velja mót fyrir það sem gera skal og síðan farið í glerskurðinn og þegar búið er að móta glerið er það málað eða skreytt eftir því sem hver vill eða haft ólitað og að því loknu tekur brennslan í ofninum einn sólarhring.
Svana er með mikið og fjölbreytt úrval fallegra glermuna eins og Hornfirðingar fengu að sjá á sýningu þeirra hjóna í Pakkhúsinu í vor og má t.d. nefna borðbúnað, kertastjaka, skálar, veggmyndir, krossa og ótal margt fleira. Þetta er eins auðvelt og hægt er að hugsa sér , sagði önnur konan sem sótti námskeiðið, þetta geta allir og þetta er óskaplega skemmtilegt verkefni svo er Svana mjög góður og skemmtilegur leiðbeinandi og hefur þolinmæði út í það óendanlega.

Áhöldin sem til þarf til að vinna úr gleri er glerskurðarhnífur og olía, hægt er að fá hnífa með olíu í, mót, liti og svo auðvitað glerið sem er bara venjulegt gler.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica