Október
Kvennafrídagurinn 2005
Kvennafrídagurinn 2005
Þessar mættu meðala annars á KaffiHornið á Kvennafrídeginum
Mynd 2 af 2
1 2

25.10.2005 Október

Góð þátttaka var í kvennafrídeginum á Höfn

Góð þátttaka var í kvennafrídeginum á Höfn í gær. Landsbankinn, Sparisjóðurinn, Pósthúsið og nokkrar verslanir lokuðu kl 14.08 en á þessum stöðum eru allir starfsmenn konur. Á öðrum vinnustöðum var veitt frí eftir því sem hægt var. Safnast var saman á Kaffihorninu en þar varð strax fullt út úr dyrum einnig hélt hópur kvenna á Hótel Höfn þar sem beið þeirra kaffi, kakó og konfekt í boði hótelsins. Eftir notalega stund á Hótel Höfn var haldið í kröfugöngu þar sem launajafnræðis var krafist. Ingólfur Einarsson á Kaffihorninu sagði að beðið hefði verið um tilboð á kaffi og tertu fyrir nokkrar konur sem ætluðu að koma þar saman og var það auðsótt mál. Ég hafði nú grun um að þær gætu orðið fleiri en nokkrar svo það var nóg til handa þessum 130-140 konum sem komu. Það var bara alltof þröngt hér fyrir allan þennan kvennahóp en þröngt meiga sáttir sitja og þetta gekk allt upp.

Það er algjör feill að vera með svona lítið pláss á frídegi kvenna, við höfum það betra á næsta frídegi sagði Ingólfur að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica