Október
Margrét Frímannsdóttir
Margrét Frímannsdóttir
Margrét Frímannsdóttir

28.10.2005 Október

Samfylkingin á Hornafirði stefnir í bæjarstjórn

Laugardaginn 29. október ætla félagar í Samfylkingunni á Hornafirði að hittast á Kaffihorninu kl. 15:00 og ræða fyrirhugað framboð sitt í væntanlegum sveitastjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem fer fram í maí á næsta ári. Gestur fundarins verður Margrét Frímannsdóttir, 1. þingmaður Suðurkjördæmis og formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Að sögn Árna Þorvaldssonar þá hefur stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði stefnir á að bjóða fram sérlista Samfylkingarinnar í næstu sveitastjórnarkosningum og er þessi fundur með Margréti liður í undirbúningi að því framboði.

Stjórnin hvetur alla Samfylkingarfélaga og áhugamenn um öflugt pólitískt framboð jafnaðar og félagshyggjufólks á Hornafirði til þess að mæta. Fundurinn hefst kl. 15:00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica