Nóvember
Fareyska skipið Sandfrakt
Fareyska skipið Sandfrakt
Fareyska skipið Sandfrakt

04.11.2005 Nóvember

Steypuefni frá Hornafirði til BM Vallá á Reyðarfirði

Flutningur á steypuefni frá Hornafirði til BM Vallá á Reyðarfirði heldur áfram. Færeyska flutningaskipið kom í gær 3.nóv. aðra ferð sína eftir efni. Ómar Antonsson segir að á næstunni verði flutt 3-4 þúsund tonn af steypuefni á Reyðarfjörð, allt flutt sjóleiðina og tekur skipið um 700 tonn í ferð. Efnið er tekið úr malar-sandhaugnum í Óslandinu en seinna verður efni tekið á Austurfjörum og segir Ómar að verið sé að skoða hvar henti best að koma upp trébryggju innanfjarðar við Austurfjörur og flytja efnið á færibandi um borð í skip.

Ómar er bjartsýnn á að fleiri möguleikar opnist meðsölu á þessu frábæra steypuefni sem hér er að fá í ómældu magni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica