Nóvember
Langfótungur
Langfótungur
Hvanney SF-51 fékk þennan langfótung í netin hjá sér s.l. föstudag. Langfótungur og er mjög sjaldgæfur hér við land. (mynd BA)

23.11.2005 Nóvember

Hvanney SF fékk langfótung, nornakrabba í netin

Óvenjulegur fiskur, ef fisk skal kalla, kom í netin hjá Hvanney SF-51 þegar hún var að veiðum út af Hálsunum í síðustu viku. Björn Arnarson safnvörður fékk krabban, sem hann sagðist þekkja undir nafninu langfótungur, og væri algengur við strendur Evrópu og að einn slíkur hefði veiðst á Erlingi SF fyrir fjórum árum. Skel krabbans er um 10 cm löng en heildarlengd er um 30 cm. Til að fá nánari upplýsingar um þennan sjaldséða krabba hafði vefurinn samband við sérfræðingana hjá Hafró og bað um nánari upplýsingar langfótunginn. Kristján Lilliendahl brást skjótt við og sagði; mér sýnist af myndinni að dæma að þetta sé nornakrabbi (á latínu Paromola cuvieri) sem hefur hingað til verið sárasjaldgæfur við Ísland.

Fyrsta eintakið fannst um 1930 en síðan varð hans ekki vart þar til nú á allra síðustu árum að fundist hafa fjögur eintök til viðbótar. Þetta gæti því verið í sjötta skiptið sem þessi tegund finnst hér við land. Ég og tveir félagar mínir hafa nýlokið að skrifa ritgerð um þessa tegund sem mun birtast í Náttúrufræðingnum á næstu dögum.
Björn sagði að krabbinn væri góð viðbót við sjávardýrasafnið og að allar slíkar sendingar væru vel þegnar í safnið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica