Samningur um Háskólasetur á Höfn verður endurnýjaður
Nú er ljóst að á fjárlögum Alþingis verður Háskólasetrinu á Höfn veittar 7 milljónir kr. þannig að samningur um Háskólasetur á Höfn verður endurnýjaður. Þetta er góður grunnur fyrir áframhaldandi reksturs Háskólasetursins sagði Albert Eymundsson bæjarstjóri. Síðan er von á mótframlögum frá Háskólanum, Sveitarfélaginu og fleiri aðilum. Háskólasetrið hefur verið starfrækt í rúm þrjú ár og hefur fyrst og fremst verið rannsóknasetur en vilji heimamanna er að efla það og auka möguleika fólksins á staðnum að stunda menntun á háskólastigi í fjarnámi.
Háskólasetrið er ein af mörgum stofnunum sem hafa aðsetur í Nýheimum og sl. þrjú ár hefur Rannveig Ólafsdóttir verið forstjóri þess.




Skrifa athugasemd