Sveitarfélagið Hornafjörður - Nóvember
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
Opinn fundur um  haf- og fiskirannsóknir
      <description>Hafrannsóknastofnunin boðar til opins fundar um haf- og fiskirannsóknir á Hótel Höfn, í kvöld 30. nóvember kl. 20:00. Þar mun Jóhann Sigurjónsson forstjóri flytja erindi ásamt sérfræðingum stofnunarinnar þeim Þorsteini Sigurðssyni, sem talar um ástand uppsjávarfiskistofna, og Guðrúnu Helgadóttur sem ræðir um kortlagningu hafsbotns og búsvæða. Á eftir verða umræður og fyrirspurnum svarað. Fundarstjóri verður Albert Eymundsson. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafró og starfsmenn stofnunarinnar hafa undanfarið verið á hringferð um landið og haldið fundi þar sem margvísleg málefni hafa verið til umræðu s.s. veiðarfærarannsóknir,árangur í stjórn fiskveiða, fæðuástand nytjastofna,einkum þorsks og hvort loðnuveiðar væru skynsamlegar í því tilliti, hver væri staða sandsílis og ástand fuglastofna t.d. kríu.</description>
Níutíu manns mættu á Borgarafundinn
      <description>Rúmlega níutíu manns mættu á Borgarafundinn í Nýheimum sem haldinn var sl. mánudagskvöld sem er mæting með því besta sem gerist. Helstu mál fundarins voru bygging nýrrar sundlaugar sem ákveðið er að byggð verði vestan Heppuskóla og verði tilbúin sumarið 2007, einnig ný fjárhafsáætlun fyrir Sveitarfélagið, farið yfir aðalskipulag  og þær breytingar sem þar eru fyrirhugaðar. Albert  Eymundsson bæjarstjóri sagði að bæjarráð hefði samþykkt að skipa framkvæmda- og byggingarnefnd vegna fyrirhugaðra íþróttamannvirkja m.a. sundlaug og íþróttavöll. Nefndin skal skipuð fimm aðilum; einum fulltrúa frá hverju framboði og tveim án tilnefningar. Tillögur um nefndarskipun skal liggja fyrir á næsta bæjarráðsfundi. Samþykktar  hafa verið 150 miljónir til framkvæmda á næsta fjárhagsári, m.a. til byggingar nýju sundlaugarinnar.</description>
Fékk fyrsta vinning í Línunni
      <description>Um síðustu helgi, laugardaginn 26. nóvember var dregið í Línunni, styrktarhappdrætti slysavarnadeildarinnar Framtíðar. Alls voru vinningar 42. Reynir Ólason fékk fyrsta vinning. Hann hlaut ferð Höfn – Reykjavík, - Höfn frá Landsflugi. Slysavarnarkonur vildu koma á framfæri þakklæti til Landsflugs, Norðlenska, Landsbankanum, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Esso, Hárgreiðslustofu Jónu Margrétar, Lyfju, Gróu Eyjólfsdóttur, Skinney/Þinganes, Kaffi-Horninu, Sparisjóðnum, Olís, Sporthöllinni, Jaspis og Andarsláturhúsinu sem og öðrum sem styrktu þær með vinningum í happdrættinu.</description>
Samningur um Háskólasetur á Höfn verður endurnýjaður
      <description>Nú er ljóst að á fjárlögum Alþingis  verður Háskólasetrinu á Höfn veittar 7 milljónir kr. þannig að samningur um Háskólasetur á Höfn verður endurnýjaður. Þetta er góður grunnur fyrir áframhaldandi  reksturs Háskólasetursins sagði Albert Eymundsson bæjarstjóri. Síðan er von á mótframlögum frá Háskólanum, Sveitarfélaginu  og fleiri aðilum. Háskólasetrið hefur verið starfrækt í rúm þrjú ár og hefur fyrst og fremst verið rannsóknasetur en vilji heimamanna er að efla það og auka möguleika fólksins á staðnum að stunda menntun á háskólastigi í fjarnámi.</description>
Íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta á borgarafund
      <description>Borgarafundur verður haldinn í Nýheimum mánudaginn 28. nóv kl. 20.00. Full ástæða er til að ætla að sá fundur verði vel sóttur af  íbúum sveitarfélagsins þar sem aðalfundarefnið er fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Ég á von á að það sem hæst ber þar verði umræða um hvað verði miklar framkvæmndir í sambandi við íþróttamannvirki einkum sundlaugarbyggingu segir Albert Eymundsson bæjarstjóri. Íþróttaframkvæmdirnar eru stóra málið en að öðru leiti er fjárhagsáætlunin hefðbundin. Einnig verður rætt um aðalskipiulagið sem er í endurskoðun þar sem kemur til umfjöllunar álitamál sem verið hafa um vegstæði  um Hornafjarðarfljót og eins vegstæði þjóðvegar 1 í Öræfasveit. Undirbúningur fyrir byggingu nýrrar brúar og breytt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót er kominn í fullan gang, Vegagerðin er að móta sínar tillögur og bæjarstjórn er með sínar tillögur og þar sem þær eru ekki þær sömu hjá báðum aðilum þarf að skoða þær og vega og meta hvaða leið verður valin</description>
      <alt>Albert Eymundsson, bæjarstjóri</alt>
Hvanney SF fékk langfótung, nornakrabba í netin
      <description>Óvenjulegur fiskur, ef fisk skal kalla, kom í netin hjá Hvanney SF-51 þegar hún var að veiðum út af Hálsunum í síðustu viku. Björn Arnarson safnvörður fékk krabban, sem hann sagðist þekkja undir nafninu langfótungur, og væri algengur við strendur Evrópu og að einn slíkur hefði veiðst á Erlingi SF fyrir fjórum árum. Skel krabbans er um 10 cm löng en heildarlengd er um 30 cm. Til að fá nánari upplýsingar um þennan sjaldséða krabba hafði vefurinn samband við sérfræðingana hjá Hafró og bað um nánari upplýsingar langfótunginn. Kristján Lilliendahl brást skjótt við og sagði; mér sýnist af myndinni að dæma að þetta sé nornakrabbi (á latínu Paromola cuvieri) sem hefur hingað til verið sárasjaldgæfur við Ísland.</description>
Ber þess víða merki að hann hefur orðið fyrir grjótkasti
      <description>Landrover jeppi vegagerðarinnar á Hornafirði sem notaður er í hreinsunarferðir í Hvalnes- og Þvottárskriður ber þess víða merki að hann hefur orðið fyrir grjótkasti og fyrir stuttu kom um 10 cm rifa á vinstri afturhurð bílsins þegar steinn lenti á honum en ökumann sakaði ekki. Starfsmenn vegagerðarinnar þurfa alla daga að fara austur í Hvalnes- og Þvottárskriður til að hreinsa grjót sem hrinur úr skriðunum af veginum þ.e. þjóðvegi 1, og  segir Jón Bjarnason  þá oft þurfa að fara jafnvel seint á kvöldin og hreinsa veginn svo flutningabílarnir komist þar um. Það er algengt að steinar í fótboltastærð kastist niður á veginn og stundum steinar allt upp í einhver tonn þeir stærstu segir Jón. Það ætti öllum að vera ljóst sú hætta sem starfsmenn vegagerðarinnar eru í við störf sín að halda veginum þarna greiðfærum og oft í snarvitlausum veðrum sem eru algeng  á þessu svæði. Það er mikið hagsmunamál, ekki bara fyrir Hornfirðinga heldur alla þá sem þurfa að aka um Hvalnes- og Þvottárskriður að þarna verði komið á öruggu vegasambandi áður en þarna verða stórslys.</description>
Skaftafellsjökull hefur styst um 97 frá síðasta ári
      <description>Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum hefur í tugi ára fylgst með breytingum á Skaftafells- Svínafells- og Fallsjökli í Öræfum og mælt og fylgst með breytingu jöklana á hverju ári. Frá síðasta ári hefur Skaftafellsjökull styst um 97 metra og er það með meira móti segir Guðlaugur, jökullinn er sléttur og hefur lækkað mikið. Svínafellsjökull hefur styðst um 25 m. það er líka með meira móti. Þar sem ég mæli er niður bratta öldu hefur verið mest lækkun, ekki stytting á jöklinum en hann er núna farinn að verða sléttari og kominn niður ölduna og þá mun hann styttast meira. Falljökull hefur aðeins styst um 9 metra. Það liggur mikil grjótskriða ofan á mestum hluta jökulsins og því eyðist hann lítið. Ég mæli jökulinn fram með skriðunni og þar eyðist hann mikið. Þar sem hann fellur niður og er brattastur eru alltaf að koma í ljós nýir klettar segir Guðlaugur.</description>
Ákveðið að bæta við tveimur sýningum
      <description>Þessa viku hafa verið þemadagar í Heppuskóla.  Í skólanum hefur verið mikið líf og fjör þar sem allir hafa fundið eitthvað við sitt hæfi.  Þemað að þessu sinni var Þorrinn og Ásatrú og var nemendum skipt upp í átta hópa.  Hóparnir unnu að margvíslegum verkefnum tengdum þemanu s.s. Ásatrúarhópur, blóthópur, Þrymskviðuhópur, hópur sem málaði leikmynd við Þrymskviðu,  Rúna- og galdrahópur, matarhópur, hópur sem kynnti sér álfa- og vættatrú og hópur sem kynnti sér nútíma ásatrú.  Búnar voru til galdrarúnir, steikt flatbrauð, gömlu jólasveinarnir teknir upp á myndband, settur upp langeldur og máluð listaverk af gömlu goðunum svo eitthvað sé nefnt. Hópurinn sem setti upp leikritið Þrymskviðu hefur verið óþreytandi að sýna leikritið enda er það ákaflega skemmtilegt.  Hópurinn sýndi fjórum sinnum í gær á degi íslenskrar tungu, á leikskólunum Krakkakoti og Lönguhólum.  Sýningarnar</description>
Hrekkjahús Þrykkjunar
      <description>Nú vinna krakkarnir í Þrykkjunni að því að breyta kjallara Vöruhússins í Hrekkjahús. Á þriðjudaginn kemur 22.nóvember verður 6.og 7. bekkingum í Hafnarskóla og 8.- 10. bekkingum í Heppuskóla boðið að heimsækja Hrekkjahúsið. Þetta er orðinn árlegur viðburður í starfi Þrykkjunnar að útbúa slíkt hrekkjahús og hvílir mikil leynd yfir undirbúningnum. Það fylgir hrekkjahúsinu mikil spenna bæði þeirra sem standa að undirbúningi og þeirra sem fá að heimsækja Hrekkjahúsið. Í Hrekkjahúsinu eru á ferli ýmsar kynjaverur sem sumar gefa frá sér ógurleg hljóð og gera fólki bílt við með ýmsum hrekkjum og oft er lyktin þarna inni alveg óbærileg.  Þá er bara að taka inn lýsið fyrir þriðjudaginn. Korrýró og dillumdó. Næsti stórviðburður hjá krökkunum er samstarfsverkefni Þrykkjunnar og Heppuskóla um hina mögnuðu 1.des. skemmtun sem fram fer í Sindrabæ á fullveldisdaginn.</description>
Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi
      <description>Öll viljum við fækka slysum í umferðinni, ein leið til þess er að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins og sumar brýr eru með öllu óþarfar, segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Á Skeiðarársandi er t.d. einbreið brú yfir Sæluhúsavatn þar sem ekkert vatn rennur undir og hefur ekki gert í 9 ár, brúin hefur því ekkert gildi að mínu mati. Ragnar sendi bréf til Samgönguráðherra og Vegagerðinnnar  þann 29. mars 2005, þar sem hann rökstuddi tillögu sína um að fjarlægja mætti brúnna yfir Sæluhúsavatn hið fyrsta. Ekkert jökulvatn hefur komið undir brúna  síðan í Skeiðarárhlaupinu 1996 og leysingarvatn af sandinum er mjög lítið. Brúin er mikil slysagildra á þjóðvegi nr.1. þegar ekið er yfir Skeiðarársand frá Núpsvötnum að Skeiðarárbrú um 20 km leið, þá er farið yfir tvíbreiða brú á Sandgígukvísl, síðan er ekið í gegnum einsleitt landslag og á miðri þeirri leið er ekið yfir brúna á Sæluhúsavatni. Alltaf kemur þessi litla brú ( lítil miðað við aðrar brýr á Skeiðarársandi) á óvart þar sem ekki er nokkur vatnsspræna sjáanleg.</description>
Haustlitaferð í Núpsstaðaskóg
      <description>Dagurinn er 17. september og ferðinni er heitið í Núpsstaðaskóg með Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu. Farið var frá tjaldstæði Hafnar klukkan 8 í blíðskaparveðri, 7°c og logni. Í ferðina fóru 23 ferðalangar á 6 jeppum. Fararstjóri ferðarinnar var Sigurjón Einarsson. Ég (Lilja) og synir mínir 2, Maron og Ægir fengum að fljóta með Rannveigu Einarsdóttur og Magnúsi Jónassyni, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Á móti okkur tók einkar stórbrotið og ægifagurt landslag þegar við keyrðum inn með Lómagnúpi í átt að Núpsstaðaskógi. Það ríkti mikil spenna þegar Maggi fór yfir Núpsvötn, þar var frekar stórgrýtt og gaman að hossast yfir. Fyllt var á orkubirgðirnar með hinum ýmsu kræsingum áður en lagt var í gönguferðina inn í Núpsstaðaskóg.</description>
      <alt>Haustlitaferð í Núpsstaðaskó</alt>
Hreindýr stórum hópum
      <description>Hreindýrin, sem að venju halda niður í byggð í byrjun vetrar, eru nú í stórum hópum  í Lóni Mýrum, Suðursveit og Nesjum. Um helgina voru stórir hreindýrahópar í Lóninu fast við þjóðveginn og fara  dýrin í rólegheitum yfir veginn þvert fyrir umferðina og virðast ekkert kippa sér upp við það þó bílar væru að koma og þyrftu að snarhemla fyrir þeim. Ökumenn þurfa að sýna fulla aðgát á þessum slóðum einkum eftir að dimmt er orðið og að sögn lögreglunnar á Höfn hafa undanfarið orðið þrjár ákeyrslur á hreindýr. Í öllum þessum tilfellunum þurfti að aflífa dýrin og þau urðuð og mikið tjón varð á ökutækjum.</description>
Góðar horfur í kúabúskap
      <description>Á síðasta fundi atvinnumálanefndar  Hornafjarðar upplýsti Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandinu að bjart væri yfir kúabúskap bænda í héraðinu og horfur góðar núna. Greiðslumark í mjólk hefur staðið í stað allra síðustu ár en hefur vaxið um tæplega miljón lítra frá 2002-2003.  Mikil eftirspurn er eftir mjólk og nú meiga bændur framleiða mjólk að vild, það er tekið við allri umfram mjólk og þá er greitt fyrir próteinhlutann af mjólkinni. Grétar segir vaxandi vandamál hversu kálfadauði er mikill og að hlutfall nautkálfa er hærra en kvíga. Sala kjöts hefur aukist og er nú vöntun á nautakjöti og gjaldskrá til bænda hefur hækkað. Á Hornafjarðarsvæðinu eru 13 kúabú, sem eru með einhverja framleiðslu að ráði, og af  þeim eru sjö bú með 100 þús. mjólkurlítra framleiðslu og meira á ári. Mest er mjólkurframleiðsla  á Seljavöllum.</description>
      <alt>Góðar horfur í kúabúskap</alt>
Keppna í First LEGO league í Reykjavík
      <description>Núna á laugardaginn heldur til keppni í Reykjavík fríður hópur nemenda bæði úr Heppu- og Hafnarskóla.  Hér er um að ræða tvö lið sem ætla að taka þátt í keppninni First LEGO league.  Keppnin er haldin í húsi Marel í Garðabæ.  Þetta er í fyrsta sinn sem þessi keppni er haldin hér á landi en nokkur hefð er fyrir henni annarsstaðar í Evrópu og í Bandaríkjunum.  Liðin verða að forrita vélmenni sem þau smíða sjálf úr legókubbum, og láta það leysa ýmsar erfiðar þrautir.  Einnig þarf liðið að flytja verkefni að eigin vali sem tengist þema keppninnar.  Í ár er þemað kallað Ocean Odyssey og tengist það hafinu og auðlindum þess.  Þrautabrautin sem þarf að leysa er látin vera í mynd hafsbotns þar sem þarf að koma kafbát frá borði rannsóknarskips, girða af sokkin fjársjóð og bjarga honum, tengja lagnakerfi, verja dælustöð með yfirbyggingu og hreinsa upp gám og innihald hans. Allt þetta og margt fleira verður vélmennið að geta gert hjálparlaust eftir að hafa verið sett af stað.</description>
      <alt>First LEGO league</alt>
Lionsklúbburinn gefur tvö hjartastuðtæki
      <description>Lionsklúbbur Hornafjarðar afhenti í gærkvöldi tvö hjartastuðtæki sem verða til staðar í Hafnar-sundlaug og Flosalaug í Öræfum. Guðbrandur Jóhannsson lýsti notkun þeirra og sagði  það ótvírætt hafa sannað sig hversu góð öryggistæki þetta eru. Samaritan Pad tækin eru sjálfvirk, auðveld í notkun og íslenskt tal leiðbeinir jafnvel óreyndasta notanda gegnum endurlífgunarferilinn. Þetta eru tæki sem hentar að hafa í hvaða farartækjum sem er, á vinnustöðum, íþróttamiðstöðvum, í heimahúsum og nánast hvar sem fólk kemur saman. Hjartastuðtækið greinir ástand hjartans með aðstoð rafskauta sem límd eru á brjóstkassa  sjúklingsins og getur  greint hjartsláttartruflanir sem kallaðar eru skyndilegt hjartastopp. Ef svo er þá leiðbeinir tækið með tali og táknum gegnum hina einföldu notkun tækisins og gefur stuð sem leiðréttir hjartsláttartruflanir og kemur hjartanu aftur í réttan takt.</description>
      <alt>Lionsklúbburinn gefur tvö hjartastuðtæki</alt>
Kiwanisklúbburinn færði Heppuskóla höfðinglega gjöf
      <description>Kiwanisklúbburinn Ós færði Heppuskóla höfðinglega gjöf á dögunum, Klúbburinn kom í heimsókn þriðjudaginn í síðustu viku og færði skólanum hljóðkerfi sem notast við kennslu í skólanum. Skólinn á þegar nokkur slík kerfi sem eru staðsett í skólastofum Heppuskóla en ekki nógu mörg í allar kennslustofur og var þetta því kærkomin viðbót við kennslubúnað skólans. Það voru þeir Haukur Þ Sveinbjörnsson og Miralem Haseta sem afhentu gjöfina fyrir hönd kiwanisklúbbsins að öllum nemendum skólans og stafsliði viðstöddu.</description>
Mikið rætt um nýja sundlaug í tengslum við Landsmót UMFI
      <description>Bygging nýrrar sundlaugar eða endurbætur á gömlu sundlauginni er meðal þess sem mikið er rætt hér á Hornafirði þessa dagana og þar sem Landsmót UMFI verður haldið hér 2007 er ekki til setunnar boðið með úrlausn á þessu máli. Friðrik Ingvaldsson formaður æskulýðs-og tómstundaráðs segir að undirbúningsnefnd sé að fara yfir undirbúning og málefni landsmótsins og mun hún skila af sér mjög fljótlega. Einnig er verið að fara yfir þær kostnaðar og hönnunarskýrslur sem fengnar hafa verið frá Hönnun á Reyðarfirði yfir nýbyggingu sundlaugar og endurbóta á gömlu sundlauginni. Það ætti að koma í ljós fljótlega hvaða ákvörðun verður tekin í sundlaugarmálum hér og ég held að almennt séu menn á því að farið verði út í byggingu nýrrar laugar og ég er þeirrar skoðunar að það sé ekkert vit í að fara að byggja upp og endurbæta gömlu laugina segir Friðrik.</description>
Þörf á nýjum röntgentækjum á heilsugæslustöðina
      <description>Sveitarfélagið Hornafjörður er eitt afskekktasta læknishérað landsins og því mikilvægt  að tækjabúnaður á heilsugæslustöðinni sé eins fullkominn og kostur er. Bæði félög og einstaklingar í sveitarfélaginu hafa á liðnum árum tekið virkan þátt í að kaupa tæki á heilsugæsluna og hjúkrunardeildina.  Nú er staðan þannig að röntgentæki og framköllunarvél heilsugæslustöðvarinnar eru orðin að safngripum. Fyrir löngu  eru ófáanlegir varahlutir í þau og bilanatíðnin er há. Það kemur sér mjög illa þegar tækin eru biluð þar sem langt er á næsta sjúkrahús og ekki alltaf  ferðafært. Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir segir að frá því hún kom til starfa hér hafi hún og hennar starfsfólk lent í allskonar vandræðum með þessi tæki, bæði sé erfitt að nota þau, þau bila oft, framköllunarvélin er óáreiðanleg  og getur eyðilagt myndir,  einnig er  tæknilega erfitt að  taka  góðar myndir  og takmarkað hvað við getum myndað hér .  Einnig  höfum við enga möguleika á að senda myndir til úrlausnar jafnóðum og fá þannig álit sérfræðinga á meðferð segir Ragnhildur.</description>
Búið að dæla úr Grynnslunum
      <description>Nú er lokið við að dæla úr Grynnslunum.  Búið er að dæla um 50.000 rúmetrum þannig að dýpi í nýrri rennu er um og yfir 8,5 metrar.  Dæluskipið Skandia mun dæla á 3 stöðum í innsiglingarrennunni milli hafnarinnar og Óssins áður en það fer. Framundan er síðan eftirlit með hvernig rennan á Grynnslunum mun standa sig á næstu mánuðum, en dýpið verður reglulega mælt með Birni Lóðs og með hjálp hugbúnaðar og landlíkans er hægt að sjá tilfærslur á efni á botninum. Út frá þessum upplýsingum verður síðan hægt að meta hvernig staðið verður að því að halda nægjanlega djúpri rennu í gegnum Grynnslin. Bráðlega verður farið í að auglýsa útboð við nýja bryggju í Óslandi sunnanverðu, en hún hefur fengið vinnuheitið Bátstangabryggja eftir tanga á svæðinu.</description>
      <alt>Skandia</alt>
Hlaut viðurkenningu fjármálaráðuneytisins
      <description>Guðmundur V. Friðjónsson sem stundaði meistaranám í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í Árósum hlaut viðurkenningu fjármálaráðuneytisins fyrir lokaverkefni sitt.  Fjármálaráðuneytið hefur um nokkurra ára skeið veitt viðurkenningu vegna lokaverkefnis á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði. Viðurkenningarnar í ár eru veittar fyrir verkefni sem unnin eru á skólaárinu 2004/2005. Skilyrði fyrir viðurkenningu er að viðfangsefnið sé á sviði efnahags- eða fjármála tengt hinu opinbera. Veittar eru tvær viðurkenningar í ár, að fjárhæð 250.000 krónur hvor um sig og hlaut Guðmundur aðra þeirra segir á mbl.is. Meistararitgerð Guðmundar V. Friðjónssonar fjallar um hagkvæmni myntsvæða þar sem gerður er samanburður milli landa í því samhengi.</description>
      <alt>Guðmundur V. Friðjónsson</alt>
Steypuefni frá Hornafirði til BM Vallá á Reyðarfirði
      <description>Flutningur á steypuefni frá Hornafirði til BM Vallá á Reyðarfirði heldur áfram. Færeyska flutningaskipið  kom í gær 3.nóv. aðra ferð sína eftir efni. Ómar Antonsson segir að á næstunni verði flutt 3-4 þúsund tonn af steypuefni á Reyðarfjörð, allt flutt sjóleiðina og tekur skipið um 700 tonn í ferð. Efnið er tekið úr malar-sandhaugnum í Óslandinu en seinna verður efni tekið á Austurfjörum og segir Ómar að verið sé að skoða hvar henti best að koma upp trébryggju innanfjarðar við Austurfjörur og flytja efnið á færibandi um borð í skip.</description>
Við úthavsins strendur
      <description>Bókin ,, Við úthafsins strendur ´´, eftir færeyska fréttamanninn Árna Joensen, útgefandi er forlagið Gráfell í Færeyjum er komin út. Í bókinni eru frásagnir af slysum sem orðið hafa á  Norður-Atlandshafi  frá árinu 1975. Þar er m.a. sagt frá því þegar ,,Suðurland´´ fórst á leiðinni frá Reyðarfirði til Murmask, einnig þegar ,,Syneta´´ sigldi á litlu eyjuna Skrúð, eins og Árni orðar það.  Síðasti kaflinn í bókinni er um ,,Jökulfell´´ sem sökk á leið til Íslands  snemma á þessu ári. Í bókinni er einnig kafli um slys við innsiglinguna til Hornafarðar þegar færeyski handfærabáturinn ,,Guliklettur´´ strandaði á Hleininni við Hvanney og lenti síðan upp í  fjöru á Hvanney stuttu innan við flakið af færeyska skipinu Heimdalli sem þar fórst fyrir mörgum árum. Þrem mönnum var bjargað af skipinu en bróðir skipstjórans fórst. Stýrishúsið af  Gulakletti er enn á Suðurfjörum skammt vestan við fjöru-bryggjuna.</description>
      <alt>Við úthavsins strendur</alt>
Stofnun sjálfseignarstofnunarinnar Jöklaseturs fer fram í dag
      <description>Sjálfseignarstofnunin Jöklasetur verður formlega stofnsett í dag miðvikudaginn 2. nóvember.  Stofnfundurinn fer fram í húsnæði Jöklasýningar á Hafnarbrautinni og hefst kl.12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð. Markmið Jöklaseturs eru að stofna og reka ÍS-land, jöklasýningu á Höfn á lifandi og áhugaverðan hátt, s.s. með breytilegum sýningum, fyrirlestrum, námskeiðum o.fl, að bjóða menningartengda ferðaþjónustu með sérhæfingu, að safna saman og miðla fróðleik um jökla, myndun þeirra og mótunaráhrifum m.a. á land, gróðurfar og veður, að safna saman og miðla sögu og menningu sem tengist jöklum og lífi í nábýli þeirra, að hvetja til frekari vísindaiðkana og rannsóknavinnu tengdum jöklum og að vinna í góðum tengslum við aðrar stofnanir og félög sem þessi málefni varða hér á landi og erlendis.</description>
      <alt>Jöklasýning</alt>
Ferðamálfræðinemar á ferð um héraðið
      <description>Á laugardag og sunnudag komu sóttu nemar í ferðamálafræði við Háskóla Íslands Hornfirðinga heim.  Á laugardag komu þeir m.a. við í þjóðgarðinum í Skaftafelli, á Svínafelli og á Brunnhóli.  Á sunnudaginn heimsóttu þau Jöklasýninguna og fengu síðan kynningu í Nýheimum á þremur verkefnum sem miða að því að styrkja ferðaþjónustu í héraðinu. Rannveig Ólafsdóttir, sem skipulagði ferðina og hélt utan um hópinn, kynnti þeim NEST verkefnið, en nýverið var haldinn á vegum NEST verkefnisins fjölþjóðlegur vinnufundur í Koli þjóðgarðinum í Finnlandi þar sem mættu samstarfsaðilar verkefnisins frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Skotlandi. Ari Þ. Þorsteinsson fór yfir klasaverkefnið, en nýlega var ferðaþjónustuklasi SA-lands formlega stofnaður og verkefnahópar myndaðir.</description>