Nýlega hlaut Stella Sigfúsdóttir hjá Spa Akademíu ehf./Spa Academia Ltd. styrk frá Frumkvöðlastuðningi IMPRU nýsköpunarmiðstöð, til verkefnisins “Spa Vatnajökull.” Styrkinn mun Stella nýta til þess að gera forrannsókn á fýsileika þess, að stofna heilsulind – Spa Vatnajökul - í ríki Vatnajökuls. Nú er unnið að viðamiklum verkefnum og rannsóknum í sjálfbærri ferðaþjónustu, ásamt áætlunum um framtíðarþróun í og við væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð. Stella hefur meistaragráðu, MBA, í alþjóðlegri hótel- og ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum, með stofnun og rekstur heilsulinda (spas), sem sérsvið. Hún er einnig viðskiptafræðingur af markaðssviði frá Háskóla Íslands. Spa Akademía ehf. er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í heilsutengdri þjónustu (spa iðnaði) og er Stella Sigfúsdóttir stofnandi og stjórnarformaður.
Lesa meira