Jólatréssala í Haukafelli á Mýrum
Laugardaginn 17. desember verður hinn árlega jólatréssala í Haukafelli á Mýrum. Þá gefst fólki kostur á að koma í skóginn og fella sitt eigið jólatré. Hægt er að fá aðstoð jólasveina við verkið, en þeir búa í Fláfjalli sem er sjónhending frá Haukafelli. Í þjónustuhúsinu verður hægt að fá hressingu. Einnig er hægt að fá furu- og birkigreinar og eldivið. Öllum ágóða af sölunni verður varið til frekari uppbyggingar á útivistarsvæðinu í Haukafelli. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að gera svæðið aðgengilegt og aðlaðandi sem útivistarsvæði fyrir almenning, með vinnuframlögum velviljaðs fólks og fjárframlögum frá Sveitarfélaginu, Vegagerðinni og ýmsum sjóðum.
Allir eru velkomnir í Haukafell.





Skrifa athugasemd