Janúar
Tjaldstæði í Skaftafelli
Tjaldstæði í Skaftafelli
Tjaldstæðið í Skaftafelli (úr myndasafni)

05.01.2006 Janúar

Málþing Þjóðgarðar og ferðaþjónusta í Nýheimum

NEST – Vatnajökull Þjóðgarðar og ferðaþjónusta - byggðaþróun í nýju ljósi

Þann 12. janúar næstkomandi verður málþing haldið á Höfn í Hornafirði í fyrirlestrarsal Nýheima kl 10.00-17.00. Málþingið ber yfirskriftina Þjóðgarðar og ferðaþjónusta - byggðaþróun í nýju ljósi. Dagskrá málþingsins er í senn fjölbreytt og fræðandi og því eru allir hvattir til að mæta og leggja sitt af mörkum við uppbyggingu ferðaþjónustu í ríki Vatnajökuls og þjóðgarðsins. Málþingið er hluti af alþjóðlegu verkefni sem Austur-Skaftfellingar taka þátt í ásamt Skaftárhreppi og aðilum í Skotlandi, Finnlandi og Svíþjóð og ber yfirskriftina NEST (Northern Environment for Sustainable Tourism). Verkefnið fjallar um uppbyggingu ferðaþjónustu í grennd við þjóðgarða. Málefni sem snertir íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps afar mikið í tengslum við byggðaþróun á svæðinu og uppbyggingu Skaftafellsþjóðgarðs. NEST verkefnið er að hluta til styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins, Intereg IIIB, Northern Periphery Programme.

Að lokinni dagskrá málþingsins í Nýheimum verður opnuð sérsýning á handverki í húsnæði Jöklasýningar á Höfn. Þá mun einnig verða hleypt af stokkunum hugmyndasamkeppni um bestu afurð þjóðgarðsins. Reglur samkeppninnar verða kynntar af því tilefni.

Í tengslum við málþingið, mun Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu, verða til viðtals og gefa aðilum sem vinna að umhverfistengdum verkefnum góð ráð. Þeir sem hefða áhuga á að fá viðtal við Val Þór, vinsamlegast hafið samband við Sigurlaugu á Brunnhól í síma 478-1029 eða með tölvupósti í netfangið brunnhol@eldhorn.is.

Ekkert þátttökugjald er á málþingið.
Þeir sem vilja taka þátt í sameiginlegum kvöldverði skrái sig hjá olafia@hornafjordur.is og greiði kr. 2000 fyrir kvöldverðinn.



Dagskrá málþings (PDF)

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica