Markmið breytinganna er ætlað að efla og styrkja löggæslu
Eins og fram hefur komið hefur Björn Bjarnason dóms-og kirkjumálaráðherra kynnt ákvörðun sína varðandi nýskipan lögreglumála. Markmið breytinganna er að efla og styrkja löggæslu, bæði rannsókn sakamála og almenna sýnilega löggæslu. Samkvæmt því sem dóms- og kirkjumálaráðherra hefur kynnt ríkisstjórninni eru áform hans m.a. þau að lögreglustöðvum verði ekki lokað vegna breytinga á lögregluumdæmum og sérstaklega verði ákveðið í reglugerð að lögregluvarðstofur utan aðalstöðvar lögreglu skuli vera í Búðardal, á Patreksfirði, Hólmavík, Bolungarvík, Siglufirði, Ólafsfirði, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri og Vík í Mýrdal auk þeirra staða sem eru tilgreindir í viðkomandi reglugerð.
En hver verða helstu áhrifin sem Hornfirðingar verða varir við verði þessar breytingar að lögum og hverjar verða helstu breytingar hjá sýslumannsembættinu á Höfn
Þetta breytir ýmsu hjá okkur, segir Páll Björnsson sýslumaður, t.d. það að ég þarf ekki lengur að skipta mér af lögreglumálum, ef þetta gengur eftir, afgreiðsla vegabréfa og ökuskírteina hættir væntanlega hér á skrifstofunni og verður þá sinnt með öðrum hætti frá Eskifirði. Einnig fara frá skrifstofunni ýmsar leyfisveitingar t.d.fyrir samkomuhaldi, brennum og flugeldum svo eitthvað sé nefnt. Um helmingur af þeirri fjárveitingu sem sýslumannsembættið á Höfn fær á ári fer til lögreglunnar. Sýslumannsembættið á Höfn er stærsta embættið af þessum embættum sem koma til með að missa umsjón lögreglumála ásamt sýslumannsembættinu á Patreksfirði. Ekki vissi Páll hvort þessar breytingar yrðu til þess að störfum á skrifstofu sýslumannsembættisins hér myndi fækka.





Skrifa athugasemd