Útlán hjá bókasafninu 22 þúsund einingar á síðasta ári
Jólabækurnar komu óvenju snemma í safnið hjá okkur fyrir jólin sagði Ásdís Marteinsdóttir bókavörður hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Vinsælasta nýja skáldsagan er Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason og einnig sækjast margir eftir bókunum um Jörund Hundadagakonung en þær voru tvær sem komu út fyrir jólin. Af ævisögum er Auður Eir eftirsóttust og einnig saga Telmu Ásdísardóttur. Ekki var mikið sótt í barna og unglingabækur og Ásdísi finnst alltof fáir krakkar koma í safnið að fá bækur en skýringin á því getur verið sú að bókasöfn eru bæði í Heppu- og Hafnarskóla þar sem krakkarnir hafa aðgang að góðu úrvali bóka. Jólabækurnar í ár komu óvenju snemma í bókasafnið svo margir gátu náð sér í þær nýjustu fyrir jólin. Á nýliðnu ári voru útlán hjá bókasafninu 22 þúsund einingar þ.e. bækur, tímarit, myndbönd, kassettur og geisladiskar en alls eru tæplega 31 þúsund aðföng til útlána í safninu.
Útlán á safninu eru ókeypis fyrir ákveðinn dagafjölda en ef ekki er skilað á réttum tíma þarf að greiða fyrir þá daga sem umfram eru.





Skrifa athugasemd