Ljúka viðgerð á þjóðveginum austan Laxá í Lóni í dag
Starfsmenn Vegagerðarinnar ljúka viðgerð á þjóðveginum austan Laxá í Lóni í dag nema lagningu bundins slitlags sem verður sett á síðar. Reynir Gunnarsson segir að viðgerð á varnargarðinum við Dímu ljúki að mestu í dag og svo verði garðurinn hækkaður nokkuð. Í öllum vatnsflauminum hefur opnast ós, um 25m breiður, í fjörukambinn sunnan við Grænklett ( austur af Hraunkoti) og rennur mikið vatn úr Jökulsá þar út. Nýi ósinn er um 2 km sunnan við Bæjarós. Reynir telur litlar líkur að vandræði hljótist af þessum nýja ós og ekki þurfi að gera ráðstafanir hans vegna.
Friðrik Friðriksson í Hraunkoti vonast til að Bæjarós haldi sinni út rás þar sem hann er núna bæði breiður og djúpur. Bæjarós hefur lokast með nokkurra ára millibili og síðast fyrir 2-3 árum og þá opnuðu Vegagerðin honum farveg yfir fjörukambinn. Lokist Bæjarós hækkar fljótt í lóninu austantil og þá er hætta á að þjóðvegurinn við Hvalnes geti lokast.




Skrifa athugasemd