Atvinnuástand mikið betra en mörg undanfarin ár
Atvinnuástand á Hornafirði er alveg þokkalega gott nú í byrjun árs segir Hjördís Þóra Sigþórsdóttir formaður Vökuls stéttarfélags. Síðasta föstudag voru 16 manns á atvinnuleysisskrá og telst það ekki mikið á þessum tíma árs, líka með tilliti til þess að bátar hafa ekki róið og því lítið um fiskvinnslu. Jafnmargir karlar og konur eru á atvinnuleysisskrá. Hjördís segir að atvinnuástand á síðasta ári hafi verið mikið betra en mörg undanfarin ár og vonandi verður áframhald á því. Vökull bætti við húsnæði sitt á Víkurbrautinni í haust þegar keypt var húsnæði það sem áður var verslun Blómalands og hefur afgreiðslan verið flutt þangað niður.
Efri hæðin verður áfram notuð fyrir fundi , námskeið og þess háttar og einnig hefur vinnumiðlun Austurland aðstöðu þar fyrir starfsfundi með sínum skjólstæðingum.





Skrifa athugasemd