Söfnunin komin í 8 milljónir
Söfnun fyrir nýjum röntgenmyndabúnaði fyrir Heilsugæslustöðina hér á Höfn er komin í átta milljónir kr. og enn vantar rúmar þrjár mkr. Guðrún Júlía Jónsdóttir sagði að nú yrði farið að ganga frá pöntun á tækjunum í þeirri von að fleiri leggi okkur lið, því þetta er okkar allra hagur að geta búið heilsugæslustöðina okkar þeim tækjum sem bæta öryggi íbúanna og eru oft og tíðum lífsnauðsynleg. Margir einstaklingar hafa lagt þessu máli lið og t.d. gáfu hjón, sem ekki vilja láta nafn síns getið, 5 mkr. Skinney Þinganes gaf 1,8 mkr. Lionsklúbburinn Kolgríma 200 þús. og Hornafjarðardeild Rauðakrossins gaf 500 þús.
Við vonum enn að bæjaryfirvöld, útgerðir og fyrirtæki taki þátt í þessu átaki og hægt verði að kaupa þann búnað sem brýn nauðsyn er á að fá sem fyrst, sögðu þær Guðrún Júlía og Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir.





Skrifa athugasemd