Janúar
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

15.01.2006 Janúar

Loksins snjóaði og við fengum almennilega skafla

Snjórinn getur verið kærkominn sér í lagi þegar hann hefur ekki látið sjá sig lengi. Í morgun þegar Hafnarbúar fóru á fætur var allt orðið hvítt og skaflar út um allt. Það leið ekki á löngu þar til líf færðist í bæinn, starfsmenn Sveitarfélagsins og þeir aðilar sem hægt var að ná í voru byrjaðir að ryðja götur bæjarins. Krakkarnir voru ekki lengi að koma sér í snjógallann og rjúka af stað í næsta skafl með snjóþotur, snjósleða, snjóbretti eða eitthvað sem hægt var að renna sé á í snjónum. Sumir byrjuðu strax á snjóhúsaframkvæmdum því aldrei er að vita hvað snjórinn staldrar lengi við. Veðrið er með eindæmum gott alger stilla og heiður himinn. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þá er leiðin Höfn Reykjavík nú fær en verið er að hreinsa á suðausturhorninu. Það er þæfingsfærð um Breiðdalsheiði en opið með ströndinni austur.

Veðurstofnan segir veðurhorfur til kl. 18 á morgun suðvestan 3-8 m/s og stöku él, en 10-15 seint í kvöld og það getur haldið áfram að snjóa. Norðvestan 13-18 og stytti upp í fyrramálið, en lægir talsvert eftir hádegi. Frost er á bilinu 0 til 5 stig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica