Málfundur um öryggismál sjómann í Nýheimum
Næstkomandi miðvikudag verður haldinn í fundarsal Nýheima, málfundur um öryggismál sjómanna. Á fundinn eru sérstaklega sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig öryggi sjómanna varða er hvattir til að mæta. Fundurinn er hluti af málfundum sem haldnir eru víða um landið en þeir eru hluti áætlunar um öryggi sjófarenda og ætlað að vekja athygli á einstökum þáttum í öryggismálum, svo sem nýjungum í öryggisfræðslu o.fl. þeir sem standa að fundinum eru: Samgönguráðuneyti, Slysavarnarfélagið landsbjörg, Landhelgisgæsla íslands, Samband íslenskra kaupskipaútgerða, landssamband íslenskra útvegsmanna, landssamband smábátaeigenda, farmanna- og fiskimannasamband íslands, Vélstjórafélag íslands, Sjómannasamband íslands og Siglingastofnun sem einnig fer með framkvæmd áætlunarinnar.
Dagskrá fundarins er:
1. Setning fundar. Fundarstjóri: Albert Eymundsson, bæjarstjóri
2. Áætlun um öryggi sjófarenda. Samgönguráðuneyti.
3. Staða verkefna áætlunar um öryggi sjófarenda 2005. Siglingastofnun.
4. Nýungar í öryggisfræðslu sjómanna. Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Slysavarnarskóli sjómanna.
5. Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur - Veður og sjólag. Siglingastofnun
6. Kaffihlé (Nýungar í upplýsingakerfi um veður og sjólag).
7. Vaktstöð siglinga. leit og björgun á sjó. Vaktstöð siglinga.
8. Áherslur í öryggismálum sjófarenda. Ingólfur Ásgrímsson, talsmaður útgerðarmanna.
9. Áherslur í öryggismálum sjófarenda. Sigurður Ólafsson , talsmaður sjómanna.
Eftir dagskrá verða almennar umræður um öryggi sjófarenda. Boðið verður upp á veitingar í kaffihléinu.
Fundurinn hefst kl.20.00 til 22.30.





Skrifa athugasemd