Janúar
Öræfaferðir
Öræfaferðir
Einar á leið á Þverártindsegg með einn kúnna, (kúnninn tók myndina).
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

24.01.2006 Janúar

Mikil aðsókn að ferðum á Hvannadalshnúk

Að ganga upp á Hvannadalshnúk er nokkuð sem marga dreymir um og margir láta verða af og hefur aðsókn að ferðum þangað aukist ár frá ári. Fyrstu mánuðir ársins eru bestir til jöklaferða þegar nægur snjór er til fjalla og skíðafæri. Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður í Hofsnesi er manna kunnugastur öllu sem við kemur ferðum á Öræfajökul og nágrenni hans og þegar vefurinn hafði samband við hann í síðustu viku var hann nýkominn úr skíðagöngu. Hér er búinn að vera góður skíðasnjór svo það er hægt að fara á skíðum í allar áttir, nokkuð sem ekki hefur verið hægt síðari árin, sagði Einar og það er mjög óvanalegt að hægt sé að fara nánast hvert sem er hér um svæðið á skíðum. Ég hef ekki farið upp á Hvannadalshnúk á þessu ári en það verður í þessum mánuði, það er nánast pottþétt regla hjá mér að fara fyrstu ferð ársins á hnúkinn í janúar svona til að koma mér í form og þá fer ég oftast einn. Einar er nýbúinn að vera með Breta á fjögurra daga námskeið í ísklifri en á slíkum námskeiðum er hann aðeins með einn til tvo þátttakendur í einu.

Þetta er tæknilegt námskeið og erfitt prógramm í bröttu fjalllendi þar sem ekki er hægt að vera með hóp öryggisins vegna. Ég er farinn að stíla fleiri ferðir á Hvannadalshnúk og Þverártindsegg fyrir einn til tvo, þetta eru erfiðar ferðir sem eru eftirsóttar af útlendingum og reyndar eru íslendingar aðeins að byrja að átta sig á að hægt er að kaupa íslenskan leiðsögumann í fjallaferðir á Íslandi annað en bara í þessa dæmigerðu göngu á Hvannadalshnúk.

Útlendingar þekkja þessa þjónustu, að fá leiðsögumann með sig einan eða jafnvel tvo á erfiðar slóðir líkt og tíðkast t.d. í Ölpunum. Ég er að reyna að bjóða þannig þjónustu á okkar íslensku fjöll s.s. á Hvannadalshnúk, þá fer ég flottustu leiðina sem völ er á að ganga sem er eftir hryggnum sjálfum þar sem þarf að klifra, allt öðruvísi leið en venjulega er farið með hópana.

Ein leiðin er á Þverártindsegg, þá er ekið inn í botn Kálfafellsdals og klifrað upp á Þverártindsegg sem er í 1554 m hæð. Einnig er Miðfellstindur í Skaftafellsþjóðgarði og Hrútfjallstindur ofan við Hótel Skaftafell spennandi staðir og er leiðin á Hrútfjallstinda sú langerfiðasta, þar þarf að klifra með tveim öxum. Léttari ferð er hringferð um Svínafellsfjallið þannig að það eru bæði léttar og erfiðar ferðir í boði. Þetta eru allt ferðir sem ég byrjaði að markaðssetja á síðasta ári. Einar segir að ferð á Hvannadalshnúk taki ca 12-14 klst. en hinar eru aðeins styttri og veturinn er besti tíminn fyrir þessar ferðir þegar snjór er og núna lítur þetta mjög vel út.

Efri hluti Hvannadalshnúks og eins efri hluti jökulsins hefur verið góður hvað varðar snjóalög og litlar breytingar orðið þar, ef eitthvað þá hefur snjór frekar aukist, aðalvandamálið hefur legið svona í 800-1200 m. hæð þar sem meiri bráðnun hefur orðið þessi hlýju ár. Einar segir að búið sé að bóka ferðir á hnúkinn margar helgar og fullbókað er hjá honum um Hvítasunnuna og er þetta óvenju snemma og mikið sem búið er að panta. Mest tekur hann átta manns í hóp og er lágmarksaldur 14-15 ára sem þurfa þá að vera vel stæltir því þetta er erfið ferð fyrir svo ungt fólk.
Langmest er aðsókn íslendinga í hópferðirnar á hnúkinn þegar líða fer á veturinn og þá er einnig mikið um að 10. bekkingar grunnskóla fari í kletta og ísklifur undir leiðsögn Einars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica