Sveitarfélagið Hornafjörður - Janúar
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
Björn Lóðs aðstoðar skip við að leggjast að bryggju á Reyðarfirði
      <description>Lóðsbáturinn Björn Lóðs er ekki bara notaður til að aðstoð skip sem þurfa að fara um innsiglinguna í Hornafjarðarósi, 1. des. sl. fór lóðsbáturinn frá Hornafirði til Reyðarfjarðar til að aðstoða kínverska skipið Da Fu við að leggjast að nýju álversbryggjunni á Reyðarfirði. Da Fu er 14000 tonn, 153 metra langt og 23 metra breitt. Lámarksdjúprista skipsins er um 9,5 metrar. Skipið kom beint frá Kína og var farmurinn stálgrind í kerskála álversins. Sigling Da Fu tók 35 daga frá Kína til Reyðafjarðar. Björn Lóðs var um 9. klst. að sigla frá Höfn til Reyðafjarðar og jafn lengi til baka.</description>
      <alt>Björn Lóðs</alt>
Kiwanisklúbburinn Ós styrkir röntgenmyndavélkaupin
      <description>Kiwanisklúbburinn Ós á Hornafirði afhenti í dag kr. 150.000 til kaupa á röntgenmyndavél fyrir heilsugæslustöðina. Það voru kiwanisfélagarnir Geir Þorsteinsson og Miralem Haseta sem afhentu þeim Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra og Ragnhildi Magnúsdóttur héraðslækni gjöfina. Enn vantar um þrjár milljónir  kr. til að fjármagna kaupin á myndavélinni en Guðrún Júlía og Ragnhildur eru vongóðar um að fleiri ,,leggi hér hönd á plóginn’’ og það takist að fá þessi nauðsynlegu tæki fyrir sumarið. Munum að margt smátt gerir eitt stórt og það safnast þegar saman kemur.</description>
Jökulsárlón komið í Smáralindina
      <description>Búið er að byggja nýja sviðsmynd fyrir Idol-Stjörnuleit í Vetrargarðinum í Smáralind, það sem er skemmtilegt við sviðsmyndina er að hún er alveg eins og Jökulsárlón. Að sögn Einar Björns Einarssonar staðarhaldara á Jökulsárlóni þá er þetta mjög skemmtilegt þegar verið er að nota Jökulsárlón enda hvergi flottari staður á Íslandi. Í Vetrargarðinum hafa verið byggðir stórir ísjakar og eiga keppendur að ganga út úr einum ísjakanum þegar að þeir koma á sviðið. Stöð 2 hefur lagt mikið í þessa þáttaröð af Idol-Stjörnuleitinni og mun hún verða eins sú flottasta til þessa. Tólf munu keppa til úrslita í beinni útsendingu í kvöld og verður það á valdi áhorfenda að skera úr hverjir komast áfram með símakosningu.</description>
Internetaðgangur fyrir gesti Kaffi Hornsins
      <description>Kaffi Hornið hefur nú sett upp internetaðgang þar sem gestir hafa möguleik á að tengjast internetinu á meðan að þeir njóta veitinga. Að sögn Ingólfs Einarssonar þá hefur verið mikið spurt um þessa þjónustu og því ákvað hann að ríða á vaðið. Þessi þjónusta er viðskiptavinum Kaffi Hornsins að kostnaðarlausu. Í janúar hefur Kaffi Hornið verið með tilboð í hádeginu, tveir fyrir einn og segir Ingólfur að það hafi slegið öll met. Hjá fyrirtækinu vinna núna 5 starfsmenn og í vetur hefur verið opið alla daga nema sunnudag frá kl. 11:40 til 22:00 og á laugardagskvöldum til 01. Grunnskólakrakkar mæta í mat kl.11 og eru til hádegis en Kaffi Hornið hefur séð um mat fyrir grunnskólana á Höfn síðustu ár.</description>
      <alt>Kaffi Hornið</alt>
40 ára afmælisupplyfting á Hótel Höfn
      <description>Nú standa yfir miklar framkvæmdir á Hótel Höfn en þar er nú verið að setja utan á hótelið ál og keramik flísar. Einnig er verið að skipta um alla glugga í hótelinu og setja á það nýtt þak. Verkið var boðið út í haust og voru það þrír aðilar sem buðu í framkvæmdina, var það Kristján Ragnarsson sem fékk verkið, en hann er búinn að vera með annan fótinn hér á Höfn í ýmsum framkvæmdum, m.a. setti þakið á Nýheima. Til liðs við sig hefur Kristján fengið heimamenn til að vinna verkið að mestu leiti og er stórsmiðurinn Birgir Árnason þar í fararbroddi. Að sögn Óðins Eymundssonar eins eiganda Hótels Hafnar eru þessar framkvæmdir 40 ára afmælisupplyfting á Hótelinu en það á 40 ára afmæli á þessu ári. Óðinn segir að auk framkvæmda utan á hótelinu þá sé einnig verið að gera miklar endurbætur á herbergjum, skipta um innréttingar, leggja parket og setja upp þráðlausan internetaðgang fyrir gesti á Hótelinu. Á Hótel Höfn vinna um 26 manns yfir sumartímann en 14 yfir vetrarmánuðina, búast má við að fleiri munu starfa við hótelið yfir komandi vetrarmánuðum þar sem mikil aukning er á gistingu yfir það tímabil.</description>
Jón Halldór keypti skartgripaverslun í Hafnarfirði
      <description>Gullsmiðurinn og Hornfirðingurinn Jón Halldór Bjarnason keypti í haust skartgripaverslun á Strandgötu 37 í Hafnarfirði  þar sem hann verslar nú með skartgripi, úr og auðvitað sína vinsælu sérsmíðuð skartgripi. Þetta er allt annað líf að vera kominn með sína eigin verslun sagði Jón Halldór,  þegar vefurinn hafði samband við hann nýlega, ég er hér á góðum stað í bænum og er með verkstæðispláss þar líka. Það er alltaf mikið að gera í trúlofunarhringa sölunni og þá er ég að senda út um allt land og fyrir þá sem eru að spá í að trúlofa sig og kaupa hringa eru allar upplýsingar inn á vefsíðunni gunnimagg.is. Jón Halldór er bæði með gull- og silfur sett á íslenska þjóðbúninginn en víravirki er hann ekki með en getur látið smíða það. Hornfirðingar hafa átt mikil viðskipti við Jón Halldór gegnum árin og segir hann ekki vera neina breytingu þar á.</description>
Þorrablót Nesja- og Lónmanna næstu helgi
      <description>Þorrablót Nesja- og Lónmanna verður haldið í Mánagarði n.k. laugardag (28. janúar 2006).  Að venju verður þar verður fluttur annáll úr Nesjum og Lóni ásamt heimatilbúnum skemmtiatriðum í léttri sveiflu.  Húsið opnar kl. 19:30 og þorrablótið verður sett stundvíslega kl. 20:30. Hótel Höfn sér um þorramatinn, sem verður í trogum á borðum þorrablótsgesta, samkvæmt venju. Hljómsveit Rúnars Þórs leikur fyrir dansi. Miðaverð er aðeins kr. 4.500,- og hagstætt verð á öðrum veitingum. Aldurstakmark er 18 ár. Forsala aðgöngumiða verður í Mánagarði fimmtudaginn 26. janúar og föstudaginn 27. janúar milli kl. 16 – 20. Tekið er við debit- og kreditkortum. Miðapantanir og þátttökutilkynningar hjá Ásthildi í síma 866-4721 og Jóa 824-2407.</description>
Níu braunaútköll á síðasta ári hjá Slökkviliði Hornafjarðar
      <description>Slökkvilið Hornafjarðar var níu sinnum kallað út vegna bruna  á síðasta ári, mest varð tjón í hænsnabúinu á Grænahrauni um miðjan des. en minni háttar tjón í öðrum útköllum. Ekkert útkall varð vegna umferðarslyss þar sem þörf væri á björgunarklippum. Í stórflóðinu á Höfn og í Nesjum þann 15.okt. unnu slökkviliðsmenn við að dæla vatni  með öllum þeim dælubúnaði sem til var og stóð sú vinna í rúman sólarhring. Steinþór Hafsteinsson  slökkvistjóri segir að óvenju lítið hafi verið um sinubruna á árinu, það helsta var þegar sinueldur barst í útihús á Svínhólum í Lóni en tjón varð óverulegt.  Steinþór segir að reglulegar æfingar hjá slökkviliðinu séu um 10 á ári auk þess sem starfsmenn Brunsmálastofnunar koma 1-2 á ári og halda æfingu eða eru með námskeið. Í Öræfum gegnir björgunarsveitin Kári starfi slökkviliðs ásamt slökkviliði Hornafjarðar og þar eru 15 manns til staðar komi til útkalls, varðstjóri þar er Gunnar Sigurjónsson á Hofi. Slökkvi- og björgunarsveitin í Öræfum er með einn tankbíll með 15 tonnum af vatni og lausri dælu, einnig hefur hún björgunarklippur.</description>
Mikil aðsókn að ferðum á Hvannadalshnúk
      <description>Að ganga upp á Hvannadalshnúk er nokkuð sem marga dreymir um og margir láta verða af og hefur aðsókn að ferðum þangað aukist ár frá ári. Fyrstu mánuðir ársins eru bestir til jöklaferða þegar nægur snjór er til fjalla og skíðafæri. Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður í Hofsnesi er manna kunnugastur öllu sem við kemur ferðum á Öræfajökul og nágrenni hans og þegar vefurinn hafði samband við hann í síðustu viku  var hann nýkominn úr skíðagöngu.  Hér er búinn að vera góður skíðasnjór svo það er hægt að fara á skíðum í allar áttir, nokkuð sem ekki hefur verið hægt síðari árin, sagði Einar og það er mjög óvanalegt að hægt sé að fara nánast hvert sem er  hér um svæðið á skíðum. Ég hef ekki farið upp á Hvannadalshnúk á þessu ári en það verður í þessum mánuði, það er nánast pottþétt regla hjá mér að fara fyrstu ferð ársins á hnúkinn í janúar svona til að koma mér í form og þá fer ég oftast einn. Einar er nýbúinn að vera með Breta á fjögurra daga námskeið í ísklifri en á slíkum námskeiðum er hann aðeins með einn til tvo þátttakendur í einu.</description>
Erindi Gísla Viggóssonar hjá Siglingastofnun athyglisverðast
      <description>Milli 60-70 manns mættu á málfund  um öryggi sjómanna sem haldinn var í fundarsal Nýheima á Höfn sl. miðvikudagskvöld. Vefurinn hafði samband við tvo heimamenn þá Sigurð Ólafsson og Ólaf Einarsson sem báðir voru á fundinum og sögðu þeir að almenn ánægja hefði verið með fundinn, þau erindi og þann fróðleik sem þar kom fram. Persónulega fannst mér erindi Gísla Viggóssonar hjá Siglingastofnun athyglisverðast sagði Sigurður, Gísli ræddi um upplýsingamiðlun til sjómanna og sagði frá nýrri heimasíðu sem þeir eru að fara að opna. Á þessari nýju heimasíðu eru miklar endurbætur frá gömlu síðunni og lítur út fyrir að vera mjög aðgengileg með mýgrút af nytsamlegum upplýsingum fyrir sjófarendur.  Ég held að  þetta sé eitthvað sem við eigum eftir að njóta góðs af og allt voru þetta fróðleg og góð erindi  sem þarna voru flutt.</description>
Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu
      <description>Aðra helgi í þorra eða nánar tiltekið þann 28. janúar n.k verður haldið Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu. Blótið fer fram í Félagsheimili Seltjarnarnes. Heiðursgestir að þessu sinni eru Kristín Gests og Jóhann Morávek. Hornfirðingahljómsveitin Ungmennafélagið sem er skipuð þeim Gulla Sig., Bjarti Loga, Braga Kalla og Bjössa mun halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Miða er hægt að panta með því að senda tölvupóst á netfangið blotrvik@hornafjordur.is. Forsala aðgöngumiða verður miðvikudaginn 25. janúar á milli kl. 17 og 21 hjá Kristínu Björnsdóttur að Hringbraut 52, Hafnarfirði eða í síma 561-2747 einnig fimmtudaginn 26. janúar á milli kl. 17 og 21 hjá Elínu Ásgrímsdóttur að Vesturfold 54, Grafarvogi eða í síma 587-5067.</description>
Sérlega vel heppnað NEST málþing á Höfn
      <description>Síðastliðinn fimmtudag var haldið málþing á vegum NEST verkefnisins hér á Höfn í Hornafirði, nánar tiltekið í Nýheimum.  Þetta er annað málþing, sem haldið er á vegum NEST á Íslandi.  Það fyrra var haldið að hótel Kirkjubæjarklaustri þann 21. júní 2005. Dagskrá málþingsins var bæði vönduð og fjölbreytt og var málþingið sérlega vel sótt, frá báðum sveitarfélögunum og komu málþingsgestir víða að af landinu.  Það var einróma álit málþingsgesta að hér hefði verið á ferðinni einstaklega vel skipulagt og áhugavert málþing.  Það helsta sem á skorti varðandi málþingið var, að ekki reyndist nægilegur tími til fyrirspurna og skoðanaskipta meðal gesta og fyrirlesara.  Það er vert að hafa í huga fyrir NEST ráðstefnuna í haust.</description>
Æfingar á fullu fyrir þorrablót á Höfn
      <description>Helga Bogga leikstjóri þorrablótsnefndar sagði í viðtali við vefinn að æfingar gengu vel og að allt væri að smella saman, eina alvarlega vandamálið sem komið hefur upp var þegar í ljós kom hve margir vildu leika Albert. En nú er búið að skera úr um hver fær að leika hann og hlutverkið æft á fullu þessa dagana.  Hún sagði að það væri með eindæmum skemmtilegt fólk í nefndinni og allir til í að taka þátt og því allir með hlutverk. Aðspurð sagðist hún ekkert geta sagt um þema eða áherslur á blótinu þar sem samkvæmt venju væri það leyndarmál.</description>
Magnús og Rannveig selja Blómaland
      <description>Magnús Jónasson og Rannveig Einarsdóttir sem hafa rekið Blómaland ehf í rúm 25 ár hafa nú selt fyrirtækið og rekstur þess. Nýir kaupendur eru Rósaberg ehf og hafa þeir formlega tekið við fyrirtækinu. Bómaland var stofnað í maí 1980 og er eitt af rótgrónu fyrirtækjunum í sveitarfélaginu. Upphaflegur rekstur þess var Blómaverslun og skrúðgarðaþjónusta og var fyrirtækið til húsa að Vesturbraut 11,  það var reksturinn fluttur í bílskúr á Smárabraut 14 síðan flutti fyrirtækið í eigin húsnæði að Víkurbraut 4 sem það byggði ásamt öðrum. Á Víkurbraut 4 var bólmarverslun og skrúðgarðaþjónusta en hellusteypan hefur verið starfrækt við Álaugarveg 5 frá 1988. Blómaland seldi rekstur blómaverslunarinnar árið 2001 til Bláablómsins sem nú starfar í Miðbæ.</description>
      <alt>Magnús Jónasson</alt>
Starf forstöðumanns Háskólasetursins laust til umsóknar.
      <description>Háskólasetrið á Hornafirði er rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Suðausturlandi. Háskólasetrið hefur starfað í tæp fögur ár og rekstur þess hefur grundvallast á samstarfssamningi milli Háskóla Íslands, Vegagerðarinnar, Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Landsvirkjunar, Siglingastofnunar og Veðurstofunnar. Meginmarkmið Háskólasetursins á Hornafirði er að efla rannsóknir og þekkingartengda starfsemi á Suðausturlandi. Frá upphafi hefur Háskólasetrið einbeitt sér að því að koma á fót samvinnu um rannsóknaverkefni við ýmsar stofnanir og aðila, bæði innlenda og erlenda. Áhersla hefur verið lögð á þverfaglegar umhverfisrannsóknir og þróun rannsókna á sviði ferðamála.</description>
Málfundur um öryggismál sjómann í Nýheimum
      <description>Næstkomandi miðvikudag verður haldinn í fundarsal Nýheima, málfundur um öryggismál sjómanna. Á fundinn eru sérstaklega sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig öryggi sjómanna varða er hvattir til að mæta. Fundurinn er hluti af málfundum sem haldnir eru víða um landið en þeir eru hluti áætlunar um öryggi sjófarenda og ætlað að vekja athygli á einstökum þáttum í öryggismálum, svo sem nýjungum í öryggisfræðslu o.fl. þeir sem standa að fundinum eru: Samgönguráðuneyti, Slysavarnarfélagið landsbjörg, Landhelgisgæsla íslands, Samband íslenskra kaupskipaútgerða, landssamband íslenskra útvegsmanna, landssamband smábátaeigenda, farmanna- og fiskimannasamband íslands, Vélstjórafélag íslands, Sjómannasamband íslands og Siglingastofnun sem einnig fer með framkvæmd áætlunarinnar.</description>
Loksins snjóaði og við fengum almennilega skafla
      <description>Snjórinn getur verið kærkominn sér í lagi þegar hann hefur ekki látið sjá sig lengi. Í morgun þegar Hafnarbúar fóru á fætur var allt orðið hvítt og skaflar út um allt. Það leið ekki á löngu þar til líf færðist í bæinn, starfsmenn Sveitarfélagsins og þeir aðilar sem hægt var að ná í voru byrjaðir að ryðja götur bæjarins. Krakkarnir voru ekki lengi að koma sér í snjógallann og rjúka af stað í næsta skafl með snjóþotur, snjósleða, snjóbretti eða eitthvað sem hægt var að renna sé á í snjónum. Sumir byrjuðu strax á snjóhúsaframkvæmdum því aldrei er að vita hvað snjórinn staldrar lengi við. Veðrið er með eindæmum gott alger stilla og heiður himinn. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þá er leiðin Höfn Reykjavík nú fær en verið er að hreinsa á suðausturhorninu. Það er þæfingsfærð um Breiðdalsheiði en opið með ströndinni austur.</description>
Söfnunin komin í 8 milljónir
      <description>Söfnun fyrir nýjum röntgenmyndabúnaði fyrir Heilsugæslustöðina hér á Höfn er komin í átta milljónir kr. og enn vantar rúmar þrjár mkr. Guðrún Júlía Jónsdóttir sagði að nú yrði farið að ganga frá pöntun á tækjunum í þeirri von að fleiri leggi okkur lið, því þetta er okkar allra hagur að geta búið heilsugæslustöðina okkar þeim tækjum  sem  bæta öryggi íbúanna  og eru oft og tíðum lífsnauðsynleg. Margir einstaklingar hafa lagt þessu máli lið og t.d. gáfu hjón, sem ekki vilja láta nafn síns getið, 5 mkr. Skinney Þinganes gaf 1,8 mkr. Lionsklúbburinn Kolgríma 200 þús. og  Hornafjarðardeild Rauðakrossins gaf 500 þús.</description>
      <alt>Guðrún Júlía Jónsdóttir</alt>
Atvinnuástand mikið betra en mörg undanfarin ár
      <description>Atvinnuástand á Hornafirði er alveg þokkalega gott nú í byrjun árs segir Hjördís Þóra Sigþórsdóttir formaður Vökuls stéttarfélags. Síðasta föstudag voru 16 manns á atvinnuleysisskrá og telst það ekki mikið á þessum tíma árs, líka með tilliti til þess að bátar hafa ekki róið og því lítið um fiskvinnslu. Jafnmargir karlar og konur eru á atvinnuleysisskrá.  Hjördís segir að atvinnuástand á síðasta ári hafi verið mikið betra en mörg undanfarin ár og vonandi verður áframhald á því. Vökull bætti við húsnæði sitt á Víkurbrautinni í haust þegar keypt var húsnæði það sem áður var verslun Blómalands og hefur afgreiðslan verið flutt þangað niður.</description>
Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli
      <description>Núna stendur yfir trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli stéttarfélagi á Höfn. Þátttakendur eru 11 af öllu félagssvæði Vökuls.  Á námskeiðinu sem er haldið í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu, verður farið yfir ýmis mál sem snúa að starfi trúnaðarmanna, s.s umkvartanir og skipulögð vinnubrögð, launaseðla og launaútreikning, tryggingar og launafólk. Einn dagur er helgaður efni frá Vinnueftirlitinu, farið yfir öryggismál og einnig verður hagfræðingur með tryggingamál launafólks. Fleiri námskeið verða á næstunni t.d. byrjar viku námskeið fyrir fiskvinnslufólk næsta mánudag og eru komnir 18-20  þátttakendur  á það. 
|nl|</description>
      <alt>Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli</alt>
Ljúka viðgerð á þjóðveginum austan Laxá í Lóni í dag
      <description>Starfsmenn Vegagerðarinnar ljúka viðgerð á þjóðveginum austan Laxá í Lóni í dag nema lagningu bundins slitlags sem verður sett á síðar. Reynir Gunnarsson segir að viðgerð á varnargarðinum við Dímu ljúki að mestu í dag og svo verði garðurinn hækkaður nokkuð. Í öllum vatnsflauminum hefur opnast ós, um 25m breiður, í fjörukambinn sunnan við Grænklett ( austur af Hraunkoti) og rennur mikið vatn úr Jökulsá þar út. Nýi ósinn er um 2 km sunnan við Bæjarós. Reynir telur litlar líkur að vandræði hljótist af þessum nýja ós og ekki þurfi að gera ráðstafanir hans vegna.</description>
Þótti sjálfsagt að allir kynnu að prjóna
      <description>Hver vill ekki læra að prjóna? Hér áður fyrr þótti það sjálfsagt að hver stúlka lærði að prjóna og ekki bara stúlkur heldur karlmenn líka. Í grunnskólanum er verið að kenna krökkum að prjóna enda prjónaskapur mjög vinsæll í dag. Nú gefst þeim sem vilja kostur á að fara á prjónanámskeið sem stefnt er að halda hér á Höfn á næstunni. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Á byrjendanámskeiðinu er kennt frá grunni en á námskeiðinu fyrir þá sem eru lengra komnir verður kennt að prjóna og lesa uppskrift, prjóna dúk, peysu, vesti, fingravettlinga og ýmislegt fleira. Kennari á námskeiðinu er Ragnheiður Jóhannsdóttir sem er handmenntakennari að mennt.</description>
Slegist um hlutverk Alberts bæjarstjóra
      <description>Innan þorrablótsnefndar ríkir nú djúpstæður ágreiningur sem erfitt virðist að leysa. Fréttamaður vefsins náði tali af upplýsingafulltrúa nefndarinnar sem sagði að þetta væri búið að vera mjög erfitt. Ástæða ágreiningsins sagði upplýsingafulltrúinn vera þá að það virtist sem menn hefðu komið til starfa í nefndinni með það að leiðarljósi að þeim væri ætlað að leika Albert bæjarstjóra. Þegar farið var að útdeila hlutverkum kom í ljós að a.m.k. átta einstaklingar ætluðu sér hlutverkið.  Þetta er búin að vera þrautaganga sagði upplýsingafulltrúinn við erum nokkur sem höfum tekið að okkur að ná sættum í málinum en loka niðurstaðan var sú að það færu fram áheyrnarprufur og besti Albertinn valinn úr.</description>
Útlán hjá bókasafninu 22 þúsund einingar á síðasta ári
      <description>Jólabækurnar komu óvenju snemma í safnið hjá okkur fyrir jólin sagði Ásdís Marteinsdóttir bókavörður hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Vinsælasta nýja skáldsagan er Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason og einnig sækjast margir eftir bókunum um Jörund Hundadagakonung en þær voru tvær sem komu út fyrir jólin. Af ævisögum er Auður Eir eftirsóttust og einnig saga Telmu Ásdísardóttur. Ekki var mikið sótt í barna og unglingabækur og Ásdísi finnst alltof fáir krakkar koma í safnið að fá bækur en skýringin á því getur verið sú að bókasöfn eru bæði í Heppu- og Hafnarskóla þar sem krakkarnir hafa aðgang að góðu úrvali bóka. Jólabækurnar í ár komu óvenju snemma í bókasafnið svo margir gátu náð sér í þær nýjustu  fyrir jólin. Á nýliðnu ári voru útlán hjá bókasafninu 22 þúsund einingar þ.e. bækur, tímarit, myndbönd, kassettur og geisladiskar en alls eru tæplega 31 þúsund aðföng til útlána í safninu.</description>
Fjöldi fólks fór um helgina í Lónið til að skoða vegsummerki flóðsins
      <description>Unnið hefur verið að viðgerð á þjóðvegi 1 í Lóni á um 150 metra kafla austan við Laxá. Miklar skemmdir urðu á veginum í síðustu viku þegar Jökulsá flæddi yfir aurana eftir að hafa rutt burtu varnargarði við Dímu og vatnsflaumurinn ruddist yfir aurana, rann meðfram og yfir veginn og í Laxá. Rigning og hlýindi munu hafa komið vatnavöxtunum af stað og var vatnsmagn Jökulsár gríðarlega mikið. Varnargarðar, sem settir voru  á sl.tveim árum  sunnanmegin við Jökulsá vörnuðu því að hún flæddi úr farvegi sínum þar. Varnargarðurinn við Dímu var gerður árið 1950 og var skarðið sem áin rauf í hann um hundrað metrar. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að einhverja daga tæki að gera við veginn og eins að gera varnargarðinn upp og setja grjótvörn á hann.</description>
Heitt vatn úr borholu sem dugar fyrir allt byggðarlagið við Hala
      <description>Byrjað var að bora og leita að heitu vatni á Hala í Suðursveit árið 1992 og voru heimamenn vongóðir um að þar væri heitt vatn að finna, sem svo reyndist og á laugardaginn kom í ljós að nægjanlegt heitt vatn er þar að finna. Við byrjuðum leitina á eigin vegum, segir Fjölnir Torfason bóndi á Hala, og við fengum strax góðar vísbendingar um að hér væri heitt vatn að finna og héldum því ótrauð áfram. Það var fyrst 1998 að við fórum að nýta heitt vatn í sambandi við bleikjueldi. Búið er að bora ca. 15 holur og hafa nokkrar þeirra komið að notum við bleikjueldið. Síðan var ein hola valin fyrir djúpborun og nú um helgina varð ljóst að þar er nægjanlegt heitt vatn fyrir alla bæina hér. Þessi aðalhola er rétt vestan við bæinn og er aðeins um 300 m. í næsta hús. Þegar dýpkun hennar lauk var hún orðin 630 m djúp og hafði vatnsrennsli aukist. Ekki er búið að mæla hita vatnsins en í hitastigul 473 var hitinn 78° c  og vonast er til að ná 60-70° heitu vatni inni í húsunum.. Reiknað er með að þurfi um tvo sek.lítra vatns til neyslu  fyrir byggðarlagið við Hala og er fyllilega svo mikið vatn  sem þar kemur upp.</description>
Gáfaðasta hljómsveit landsins spilar á Þorrablótinu.
      <description>Þorrablótsnefnd hefur sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að búið er að ráða hljómsveit. Nefndin hefur verið að bíða eftir niðurstöðu um það  hver sé gáfaðasta hljómsveit landsins og það kom í ljós í úrslitum í síðasta þætti af Popp punkt en þar báru Miljónamæringarnir sigur úr bítum. Var strax að loknum úrslitum drifið í að semja við þessa gáfuðu hljómsveit og mun hún því spila á Þorrablótinu. Söngvarar sveitarinnar verða þeir Bogomil Font og Bjarni Ara. Við erum að vonum mjög ánægð með þessa niðurstöðu sagði upplýsingafulltrúi nefndarinnar í viðtali við vefinn í morgun, þetta er búinn að vera langur og spennadi ferill en nú er allt að verða klappað og klárt.</description>
Markmið breytinganna er ætlað að efla og styrkja löggæslu
      <description>Eins og fram hefur komið hefur Björn Bjarnason dóms-og kirkjumálaráðherra kynnt ákvörðun sína varðandi nýskipan lögreglumála. Markmið breytinganna er að efla og styrkja löggæslu, bæði rannsókn sakamála og almenna sýnilega löggæslu.  Samkvæmt því sem dóms- og kirkjumálaráðherra hefur kynnt ríkisstjórninni eru áform hans m.a. þau að lögreglustöðvum verði ekki lokað vegna breytinga á lögregluumdæmum og sérstaklega verði ákveðið í reglugerð að lögregluvarðstofur utan aðalstöðvar lögreglu skuli vera í Búðardal, á Patreksfirði, Hólmavík, Bolungarvík, Siglufirði, Ólafsfirði, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri og Vík í Mýrdal auk þeirra staða sem eru tilgreindir í viðkomandi reglugerð.</description>
Þrettándabrenna við Stekkhól í kvöld (frestað)
      <description>Þrettándabrennunni sem átti að verða í kvöld er frestað þar til annað kvöld (7.jan.) Hefst kl. 20:30
Eins og undan farin ár verður Þrettándabrenna Ungmennafélagsins Mána haldin inn við Stekkhól í Nesjum og mun verða kveikt í bálkestinum í kvöld kl.20:30. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá mun veðrið ganga yfir í nótt og verða gott til brennu á morgun .</description>
Málþing Þjóðgarðar og ferðaþjónusta í Nýheimum
      <description>Þann 12. janúar næstkomandi verður málþing haldið á Höfn í Hornafirði í fyrirlestrarsal Nýheima kl 10.00-17.00.  Málþingið ber yfirskriftina Þjóðgarðar og ferðaþjónusta – byggðaþróun í nýju ljósi.  Dagskrá málþingsins er í senn fjölbreytt og fræðandi og því eru allir hvattir til að mæta og leggja sitt af mörkum við uppbyggingu ferðaþjónustu í ríki Vatnajökuls og þjóðgarðsins. Málþingið er hluti af  alþjóðlegu verkefni sem Austur-Skaftfellingar taka þátt í ásamt Skaftárhreppi og aðilum í Skotlandi, Finnlandi og Svíþjóð og ber yfirskriftina NEST (Northern Environment for Sustainable Tourism).  Verkefnið fjallar um uppbyggingu ferðaþjónustu í grennd við þjóðgarða.  Málefni sem snertir íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps afar mikið í tengslum við byggðaþróun á svæðinu og uppbyggingu Skaftafellsþjóðgarðs.  NEST verkefnið er að hluta til styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins, Intereg IIIB, Northern Periphery Programme.</description>