Það er aðeins að koma mynd á þetta núna , sagði Gísli Már Vilhjálmsson þegar hann var spurður um hvernig gengi með undirbúning við vaxtasamninginn. Vinnan er vel á veg komin og það er komið mikið af góðum tillögum sem verið er að vinna úr og þær eru það sem allt byggist á til að við náum þessum samningi við ríkisvaldið. Þeim mun fleiri góðar hugmyndir sem koma, þeim mun betri vaxtasamningi náum við því þetta eru ekki neinir peningar sem koma svífandi á silfurfati til okkar. Akkúrat þessa dagana er verið að vinna að SVÓT greiningu, en þetta nafn stendur fyrir ; styrkur, veikleiki, ógnun og tækifæri. Ég vil hvetja sem flesta til að koma til máls við okkur ef þeir hefur einhverja hugmynd, ekki endilega nýja hugmynd heldur eitthvað til málanna að leggja, endilega komið til okkar segir Gísli.
Lesa meira