Febrúar
Vid_Vadid_a_Jokulsa_a_Dal
Vid_Vadid_a_Jokulsa_a_Dal
Jeppaferð 4x4 (úr myndasafni 4x4 Hornafjarðardeild)
Mynd 1 af 2
1 2

13.02.2006 Febrúar

Ætla að halda Þorrablót sitt í Snæfelli

Næsta föstudag halda félagar í Hornafjarðar-klúbbnum 4x4 þorrablót sitt í Snæfelli. Farið verður í tveim hópum, sá fyrri leggur af stað um hádegi á föstudaginn og seinni hópurinn um kl. 18. Þorkell Kolbeins sagði að ekki væri ákveðið hvaða leið yrði valin fyrir fyrri hópinn sem er á vel útbúnum jeppum, það réðist af færð og veðri hvort farið verður héðan upp á jökul og yfir jökulinn í Snæfell eða ekið upp á Öxi og yfir Eyjabakka í Snæfell sem er ca. 5 tíma ferð frá veginum af há Öxi. Þeir sem fara kl.18 fara þjóðveginn austur og um Fljótsdalsheiði og þeir þurfa ekki að vera á sérútbúnum bílum. Gist verður í Snæfellsskálanum og á laugardaginn verður farið í skoðunarferð um nágrennið. Um kvöldið verður þorra blótað og er þorramaturinn fenginn frá Egilsstöðum. Það er ekki lagt upp með neina sér skemmtidagskrá heldur verða allir sem þarna verða að sjá sameiginlega um að vera skemmtilegir og hafa húmorinn í góðu lagi. Á sunnudaginn heldur hópurinn heim og ræðst þá hvaða leið verður farin og hvenær.

Þorkell sagðist ekki sjá um skráninguna en vissi þó að á milli 20-30 manns hefðu verðið búnir að skrá sig fyrir nokkrum dögum . Þetta er í þriðja sinn sem Klúbburinn 4x4 heldur þorrablót sitt í Snæfelli. Þátttökugjald fyrir ferðina þ.e.matur og gisting í tvær nætur er kr. 5000 á mann.

Myndir úr síðustu Þorrablótsferð

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica