Margar góðar tillögur komnar í vaxtasamninginn
Það er aðeins að koma mynd á þetta núna , sagði Gísli Már Vilhjálmsson þegar hann var spurður um hvernig gengi með undirbúning við vaxtasamninginn. Vinnan er vel á veg komin og það er komið mikið af góðum tillögum sem verið er að vinna úr og þær eru það sem allt byggist á til að við náum þessum samningi við ríkisvaldið. Þeim mun fleiri góðar hugmyndir sem koma, þeim mun betri vaxtasamningi náum við því þetta eru ekki neinir peningar sem koma svífandi á silfurfati til okkar. Akkúrat þessa dagana er verið að vinna að SVÓT greiningu, en þetta nafn stendur fyrir ; styrkur, veikleiki, ógnun og tækifæri. Ég vil hvetja sem flesta til að koma til máls við okkur ef þeir hefur einhverja hugmynd, ekki endilega nýja hugmynd heldur eitthvað til málanna að leggja, endilega komið til okkar segir Gísli.
Síðasti fundur vaxtasamningarnefndarinnar var 27. jan. sl. og þá sá ég að hér vantaði algerlega ferðapunkta í hugmyndasafnið okkar hér og úr því verður að bæta. Hvert svæði í austfirðingafjórðungnum kemur með tillögur af sínu svæði og svo koma tillögur sem geta virkað á allan fjórðunginn (gamla fjórðunginn). Segja má að þessar tillögur séu bara söluvara því þær standa fyrir því sem á að selja og skapa atvinnu.
Yfirumsjón með undirbúningi og vinnu við vaxtarsamninginn hefur Atvinnuþróunarfélag Austurlands, fagmenn hér á Hornafirði eru Ari Þorsteinsson í Frumkvöðlasetrinu og Hjalti Þór Vignisson aðstoðarbæjarstjóri og í framkvæmdanefndinni eru Gísli Már Vilhjálmsson, Albert Eymundsson og Elín Magnúsdóttir.





Skrifa athugasemd