Námskeið fyrir aðstandendur og áhugafólk um geðheilbrigðismál
Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. febrúar n.k. verður haldið hér á Höfn námskeið fyrir aðstandendur og áhugafólk um geðheilbrigðismál. Á námskeiðinu mun Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur fjalla um geðraskanir, heilsueflingu, andlega og líkamlega heilsurækt, Margrét Ómarsdóttir foreldri mun fjalla um andstreymi og baráttu, Sr. Vigfús Bjarni Albertsson fjallar um meðvirkni og sjálfsvirðingu, sorg-áfall og úrvinnslu, Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur fjallar um meðvirkni innan fjölskyldunnar og hvað er til ráða, einnig heldur hún fyrirlestur seinni daginn um lífshjólið. Arndís Ósk Jónsdóttir frá Geðhjálp mun fjalla um stuðningshópa aðstandenda. Á námskeiðinu verða einnig umræðuhópar.
Námskeiðið fer fram í Nýheimum og byrjar á föstudeginum kl. 18:30. Þátttaka er ókeypis en þeir sem hafa áhuga er bent á að skrá sig fyrir 17. febrúar hjá svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi í síma 474 1464 eða 864 6753, einnig er hægt að senda á netfang: maria@redcross.is. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið veitir María Helena Haraldsdóttir svæðisfulltrúi
Sjá dagskrá





Skrifa athugasemd