Febrúar

16.02.2006 Febrúar

Fauk útaf veginum við Lómagnúp í gærkvöldi

Bíll með tengivagni fauk útaf veginum við Lómagnúp í gærkvöldi. Ökumann, sem var ungverskur, sakaði ekki en bíllinn er stórskemmdur. Vegfarendur á austurleið sáu bílinn utan vegar en engan mann,enda ekki farandi út úr bíl, og þeir höfðu samband við Neyðarlínuna frá Freysnesi. Lögreglan á Kirkjubæjarklaustri fór á staðinn og fann manninn sem þá hafði hafst við í bílnum í þrjár klst. Ekkert símasamband er á þessum slóðum svo sem víða á hringveginum þannig að maðurinn gat ekki kallað á aðstoð og engin umferð fyrr en veður fór aðeins að lægja en vindur fór í 49 m þegar hvassast var. Lögreglan á Kirkjubæjarklaustri vissi ekki um önnur óhöpp, sagði að margir hafi beðið í Vík meðan vesta veðrið gekk yfir og fjöldi fólks gisti í Freysnesi.

Í dag er gott ferða veður á þessum slóðum og síðdegis var unnið að því að rétta bílinn við og koma honum til byggða. Ungverjinn hafði komið með Norrönu með flutning sem hann fór með til Reykjavíkur og var á leiðinni til baka í Norrönu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica