Febrúar
Korafing_hja_Altinni_003
Korafing_hja_Altinni_003
Kóræfing hjá Altinni

20.02.2006 Febrúar

Mikil spenna er farin að gera vart við sig

Kvöldið stóra nálgast nú óðfluga og má með sanni segja að mikil spenna sé farin að gera vart við sig. Undirbúningsnefnd æfir stíft þessa dagana og er það ekki ofsögum sagt að þær konurnar í altröddinni fari hamförum svo rosaleg læti eru á æfingum. Heyrst hefur að stofan hjá Ágústínu, sem er er ein af altröddinni, sé öll á tjá og tundri og varla nokkur hlutur heill þar inni - já og karlinn hennar hann Jón farinn til Reykjavíkur. Samkvæmt samtali við upplýsingafulltrúa kvennakórsins Ragnheiði Rafnsdóttur þá er það ósk kvennakórskvenna að sem flestir mæti á þessa einstöku árshátíð hjá kvennakórnum.

Kvennakórskonur fóru í æfingabúðir á Djúpavog síðasta laugardag, og komu fílefldar til baka. Þeir sem urðu vitni af æfingunni urðu mjög snortnir og hefur kórinn því skipað sér í raðir bestu kvennakóra á Austurlandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica