Febrúar
Kvennakórsárshátíð
Kvennakórsárshátíð
Erna Gísladóttir á æfingu fyrir árshátíðina
Mynd 3 af 3
1 2 3

24.02.2006 Febrúar

Árshátíðaræfingarnar mjög magnþrungnar og mikilfenglegar

Nú glaðnar eftirminnilega yfir Hornafirði því nú annað kvöld þ.e. laugardagskvöldið 25. febrúar er árshátíð Kvennakórs Hornafjarðar. Þessar fræknu söngsystur eru búnar að vera við stífar æfingar og er árangurinn eftir því góður. Þær eru að æfa mörg mjög skemmtileg lög sem krefjast mikils aga. Ragnheiður Rafnsdóttir upplýsingafulltrúi kvennakórsins hafði samband við vefinn og sagði að konur úr Alt röddinni sem hún ræddi við í gærkvöldi hafi verið mjög sveittar en sælar, enda árshátíðaræfingarnar mjög magnþrungnar og mikilfenglegar. Til marks um hamaganginn, þykir það mildi að ekki hafa orðið slys á fólki. Konurnar gaspra um það sín á milli að þótt boð kæmu frá Hollywood þá þætti þeim það ekki mikið en það er nú önnur saga. Húsið opnar kl. 19.30 fyrir matargesti og verður boðið upp á fordrykk að hætti Kvennakórsins (mjög sterkur), eftir fordrykknum fylgja ljúfar veitingar að hætti mannsins hennar Lísu í Altröddinni.

Eftir matinn verður sprellað um stund, verðlaun veitt og síðan falla allir í dans þar sem hljómsveitin er ekki af verri endanum, nefnilega Stórhljómsveit Bjarts Loga, Gulla Sig. og fl. Fyrir þá sem vilja koma á dansleikinn þá opnar inn á hann um miðnættið. Að sögn Ragnheiðar þá eru allir hjartanlega velkomnir. Miðaverð á mat, skemmtun og ball er kr. 4900,- Miðaverð á dansleik er kr. 1500,-

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica