Febrúar
Kynning á verkefninu Water and Fire í Nýheimum
Í gærkvöldi var boðið til myndasýningar og kynningar í Nýheimum á verkefninu Water and Fire sem er samstarfsverkefni nemenda frá Ungverjalandi og nemenda í Framhaldsskóla Austur- Skaftafellssýslu. Þar kynntu Ungverjarnir land sitt og þjóð í máli og myndum. Sagt var frá tilurð þessa verkefnis og sýndar myndir frá Ungverjalandi og frá ferð nemenda Fas sem heimsóttu Ungverjana í fyrra og hvernig þeir kynntu landið sitt. Hjördís Skírnisdóttir kennari í Framhaldsskólanum er umsjónarmaður þessa verkefnis.
Heimasíða verkefnisins





Skrifa athugasemd