Mars
Stora-upplestrarkeppnin2006
Stora-upplestrarkeppnin2006
Sigurður Ragnarsson, Lejla Cardaklija og Rebekka Dröfn Ólafsdóttir frá Hafnarskóla

09.03.2006 Mars

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hafnarkirkju í gær. Var það í 6. sinn sem hún er haldin hér á Suðausturlandi. Upplesarar komu frá Grunnskóla Djúpavogs, Hrollaugsstöðum og Hafnarskóla, Stóðu allir lesararnir sig mjög vel. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir frá Hafnarskóla sigraði, í öðru sæti var Lejla Cardaklija frá Hafnarskóla og í þriðja sæti Sigurður Ragnarsson einnig úr Hafnarskóla. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum léku nemendur Tónskóla A-Skaftafellssýslu undir stjórn Jóhanns Moravék og Þrastar Höskuldssonar nokkur lög. Í hléi bauð Skólaskrifstofa Hornafjarðar og Mjólkursamsalan upp á veitingar. Sparisjóður Hornafjarðar veitti verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og Edda ? útgáfa gaf bók að gjöf. Einnig gaf skólaskrifstofa Hornafjarðar keppendum og þjálfurum þeirra blóm.

Formaður dómnefndar var Jón Hjartarson. Hann var mjög ánægður með frammistöðu allra keppenda og sagði að dómnefndin hafi átt mjög erfitt með að gera upp á milli nemenda. Tókst lokahátíðin í alla staði mjög vel.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica