Setja upp fuglanet í Einarslundi
Starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði þeir Björn Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson unnu að því í dag að setja upp fuglanet í Einarslundi. Fuglanetin eru til að fanga skógarþresti og aðra smáfugla sem verða merktir og síðan sleppt. Í fyrra komu fyrstu þrestirnir 20.mars en 16. mars árið áður svo þeirra er von hvenær sem er núna í vorblíðunni. Þann 14.mars var eitt ár liðið frá opnun Fuglaathugunarstöðvarinnar og á ársafmælinu var fyrsti aðalfundur stöðvarinnar haldinn. Á aðalfundinum afhenti Sverrir Scheving Fuglaathugunarstöðinni stórt safn fuglabóka bæði íslenskar og erlendar bækur og er þessi gjöf stöðinni dýrmætur fengur. Í stjórn sitja; Björn G. Arnarson formaður, Brynjúlfur Brynjólfsson og Eyjólfur Guðmundsson.
Vetrarhlaup fuglaáhugamanna fór að venju fram frá 1. des -28.feb. og er þá keppni um hver sér flestar tegundir fugla. Sigurvegarar í ár voru þeir Brynjúlfur Brynjúlfsson og Yann Kolbeinsson Reykjavík hlutskarpastir í talningunni með 66 tegundir og annar var Björn G.Arnarsson með 62 teg. Samtals sáust 83 tegundir núna sem er 10 tegundum færra en í fyrra en mun minna hefur verið um flækingsfugla hér í vetur





Skrifa athugasemd