Afhenti Fuglaathugunarstöðinni fuglabókasafn sitt að gjöf
Í dag afhenti Sverrir Scheving Thorsteinsson Fuglaathugunarstöðinni á Hornafirði fuglabókasafn sitt að gjöf. Sverrir hafði það ekki á hreinu hvað þetta væru margar bækur en sagði að þetta væru nokkrir hillumetrar. Í safninu er fuglafræði frá 17.öld, mikið frá 20.öldinni og þar er m.a.þriggja binda ritverk sem er vísindalegar rannsóknir af fuglum á Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. Björn Arnarson þakkaði fyrir þessa höfðinglegu gjöf og sagði að í safninu væru merkar bækur sem eru ekki til annarsstaðar í söfnum og því algjörir gullmolar. Ég tel þessu vel fyrir komið á þessum stað sagði Sverrir og hvergi betra og má líta á þetta sem fyrstu formlegu gjöf mína til bæjarfélagsins, til skoðunar fyrir áhuga og fræðimenn, handbækur sem henta öllum. Safnið verður skráð sem deild innan bókasafns Menningarmiðstöðvarinnar.
Gjafabréfið sem Sverrir undirritaði í dag og afhenti Birni Arnarsyni segir: Í tilefni 1 árs afmælis Fuglathugunarstöðvar Suðausturlands vill undirritaður hér með lýsa yfir, hér á aðalfundi félagsins, að hann ánafnar stofnuninni, sem afmælisgjöf allar bækur og tímarit úr bókasafni sínu, sem fjalla um fuglafræði (ornitologia) og skyld efni til eignar og varðveislu, þannig að þær haldi hópinn á bækistöð félagsins í Nýheimum, Höfn í Hornafirði. Æskilegt er að bækurnar verði skrásettar á viðeigandi hátt áður en þær fara í hillur félagsins.
Þeir félagar Björn Gísli Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson sem eiga allan heiður af stofnun stöðvarinnar hafa unnið ótrúlega fórnfúst starf á undanförnum árum og vekja aðdáun allra sem bera eitthvað skynbragð á þessi fræði. Megi starf þeirra dafna og vaxa í framtíðinni til heilla fyrir alla landsmenn. Virðing piltanna fyrir náttúrunni og öllu lífríki hér um kring er góð fyrirmynd mannfólkinu og til sóma fyrir bæjarfélagið. Undir þetta ritar Sverrir Scheving Thorsteinsson.





Skrifa athugasemd