Mars
Sendinefnd_16.03.06
Sendinefnd_16.03.06
Sendinefndin frá Utanríkisráðuneytinu stödd á Höfn 16. mars s.l. Talið frá vinstri: Geir Ulle, Christine Rahn og Rachel Phillips frá EFTA skrifstofunni. Sigríður Gunnarsdóttir, Stefán Lárus Stefánsson, Nína Björk Jónsdóttir og Guðný Ólöf Gunnarsdóttir frá utanríkisráðuneytinu.

22.03.2006 Mars

Ráðherrafundur EFTA haldinn á Höfn í júní

Alþjóðlegur bragur verður á hornfirsku bæjarlífi í 25.-27. júní í sumar, en þá verður ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) haldinn á Höfn. Búist er við að um 150 manns muni sækja fundinn. Í síðustu viku var skipulagsnefnd frá EFTA og utanríkisráðuneytinu stödd hér á Höfn til að skoða aðstæður fyrir fundinn. "Við vildum gjarnan koma til Hafnar og sýna starfsfólki EFTA skrifstofunnar, sem skipuleggur með okkur fundinn, aðstöðuna hér og hvernig landið liggur, til að auðvelda undirbúninginn," sagði Nína Björk Jónsdóttir hjá utanríkisráðuneytinu. Fundinn sækja utanríkis- eða viðskiptaráðherrar EFTA landanna fjögurra, Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss, framkvæmdastjórn EFTA, dómarar hjá EFTA dómstólnum og fulltrúar frá Eftirlitsstofnun EFTA. Þá sækja þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA fundinn, ásamt fulltrúum frá Evrópusambandinu, sem munu funda með ráðgjafanefndinni. Ísland fer nú með formennsku í EFTA samstarfinu og er fundurinn haldinn við lok íslensku formennskunnar.

Geir H. Haarde utanríkisráðherra leiðir fundinn á Höfn fyrir Íslands hönd, en ráðuneytið hefur undanfarið leitast við að halda fundi af þessu tagi á landsbyggðinni, til að gera samstarfsþjóðum Íslands kleift að kynnast aðstæðum í hinum dreifðu byggðu landsins. Þannig var síðasti ráðherrafundur EFTA sem Ísland hélt, árið 2002, haldinn á Egilsstöðum.

Utanríkisráðuneytið sér um allan undirbúning og sagði Nína Björk að nefndin væri mjög ánægð með fundaaðstöðuna hér á Höfn. Það væri allt til staðar í Nýheimum sem til þarf fyrir fund af þessu tagi, auk þess sem húsið væri sérlega skemmtilegt. Ekki skemmdi heldur fyrir hið frábæra útsýni sem við blasi, hvar sem litið er út um glugga. Nína Björk sagði að hvar sem þau hafi komið hafi þeim verið tekið einstaklega vel og alls staðar sé fólk tilbúið til að hjálpa við að gera fundinn sem best úr garði, sem sé ómetanlegt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica